Vefrallý á heimasíðu skólans
Fyrirmæli: Svaraðu spurningunum hér að neðan eins hratt og þú getur og sendu svörin í vefpósti til kennarans þíns. Þú getur haft opin glugga í Word meðan þú ert að gera rallýið og svarað spurningunum beint þangað. Til að flýta fyrir þér þá getur þú Afritað spurningarnar hér fyrir neðan, sett yfir í Word skjal og svarað hverri spurningu fyrir sig í línu fyrir neðan spurninguna. Nóg er samt að skrifa númer spurningar við hvert svar en þú sérð betur hvað þú ert að gera ef spurningarnar eru líka.

![]()
| 1. Hvert er veffang heimasíðu skólans á vefnum/internetinu? |
| 2. Hvert er netfang vefsstjórans? |
| 3. Hvað heitir vefstjórinn? |
| 4. Hvert er netfang skólastjórans? |
| 5. Hvað eru deildastjórar skólans margir? |
| 6. Hvað eru margir starfsmenn í skólanum? |
| 7. Hvert er netfang ritarans? |
| 8. Hvaða ráð eru starfandi í skólanum? |
| 9. Hver er slóðin að reglum skólans? |
| 10. Hvenær er hjúkrunarfræðingurinn við í skólanum? |
| 11. Hvað heitir umsjónarmaður lengdrar viðveru/skóladagvistar? |
| 12. Hvenær er skóladagvistin opin? |
| 13. Hvað heitir sérkennarinn/námsráðgjafinn í skólanum? |
| 14. Hvert er netfangið hans? |
| 15. Hver er slóðin að upplýsingum um foreldraröltið? |
| 16. Hvaða bekkir eru komnir með bekkjarvef sem tengdir eru vefsíðu skólans? |
| 17. Hvað eru margar slóðir undir nemendaslóðir? |
| 18. Hvað eru margar slóðir undir Foreldraslóðir? |
| 19. Hvað eru margar slóðir undir kennaraslóðir? |
| 20. Hvar kemstu inn á slóðina Gegnir? |
