![]() |
Formáli
|
|
Spilað í skugganum
Séð ofaná Kínahverfi ú rglugganum okkar
Barnabarnið borðar með prjónum
|
Tildrög þess að við störfuðum og dvöldum í Kína voru þau að fulltrúi hönnunarfyrirtækis í Reykjavík sem hugði á skipabyggingar í Kína kom að máli við Ásgeir og bauð okkur hjónum að taka að okkur umsjón með skrifstofu fyrirtækisins í Kína og Ásgeir boðið að vera fulltrúi hönnunarfyrirtækisins í Kína. Við fórum út í byrjun júni 1999 og Ásgeir kom alkominn heim haustið 2001. Fyrsti dvalastaður er Guangzhou.
Guangzhou hét áður Canton sem er mjög kínversk
borg miðað við nágranaborgina Hong-Kong.
Í Guangzhou eru
markaðirnir sem sprengja af iðandi
lífi, lykt og hávaða. Á götunum er öngþveiti
af fólki,hjólum, skellinöðrum, leigubílum,
strætisvögnum og hraðbrautum sem standa á súlum.Á
fljótinu
Zhujiang (Perlufljót) sem liggur í gegnum borgina er
einnig iðandi líf smáir og stórir bátar,
verslunar- og fólksflutningaskip á ferð upp og niður
fljótið. Það má segja að Guangzhou sé höfuðstaður
sýslunnar Guangdong og í borginni er ör fólksfjölgun
eða í kringum 20% á ári.
|
index