|
|
Siðir
|
|
Einn af mörgum görðum í Kína
Byggingarvinna
Lífið á götunni
Varðskýli |
Hjólaviðgerðamaður gerir við meðan viðskiptavinur býður
Í suður Kína er til siðs að fjölskyldur borði morgunmat á veitingarstöðum á frídögum sínum laugar- og eða sunnudagsmorgnum, við tókum þátt í þessum sið og var morgunverðarstundin mjög athyglisverð. Fjölskyldurnar mættu til morgunverðar milli kl.6.30 og 8.30 og borðuðu ýmist í stórum sal eða í minni herbergjum, mikill kliður og hávaði er í Kínverjum þegar þeir borða og er greinilegt að þeir eru þar í essinu sínu á meðan þeir matast. Maturinn sem borin er fram er allur gufusoðinn eða súrsaður og er hann ansi fjölbreyttur og framandi eins og td. hænsnaklær og súrsuð svínaeyru svo eitthvað sé nefnt. Karlarnir drekka með morgunmatnum kornbrennivín en konurnar te, karlarnir reykja mjög mikið, sumir halda á prjónunum í annarri hendi og sígarettunni í hinni á meðan þeir borða, konur hvorki reykja né drekka áfenga drykkji í suður Kína svo ég sæi.
Glæsikjólar af öllum gerðum
|