Ég sjálfur

Fjölskyldan

Dagbókin

Námið

Starfið

Áhugamálin

Vefleiðangur

 

Áhugamál Ásgeirs Guðnasonar

Áhugi minn svegist að mörgu. Þó má telja upp nokkur atriði sem eru öðrum meira áberandi. Þar er fyrst að telja áhuga minn á mannlegum samskiptum, ég hef fengið talsverða útrás fyrir áhuga mínum á mannlegum samskiptum með þáttöku í félagsstarfi Vélstjórafélags Íslands og með þáttöku í flokksstarfi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Ég hef einnig mikinn áhuga á ferðalögum og hef fengið útrás fyrir þeim áhuga mínum með ferðalögum bæði innanlands og utan, ég ferðast á öllu sem hefur yfirferð svo sem fótgangandi, á hjóli, snjósleða, bíl, skipi, flugvél og hesti. Veiðiskapur er mikið uppáhald hjá mér og gildir þá einu hvort heldur er með stöng eða byssu.