Ég er fæddur 22.febrúar
1947 í Reykjavík og alinn upp að Ljósafossi
í Grímsnesi. Æskuárin liðu í
sveitinni inannum og með blessuðum dýrunum stórum
og smáum. Unglingsárin liðu mis hratt í
skólum, þau fyrstu í barnaskóla þau
síðari í gagnfræðaskóla og
iðnskóla.Fullorðinsárin hef ég
notað meðal annars til náms í vélskóla
og kennaraháskóla, auk þess sem hendinni
hefur aðeins verið tekið til úti í
atvinnulífinu. Sem dæmi má nefna að
ég hef starfað á sjó sem undir og yfirvélstjóri
á fiskiskipum, flutningaskipum og farþegaskipum.Á
sjómannsferli mínum hef ég siglt um heimsins
höf og komið til þriggja heimsálfa. Ég
hef einnig meistararéttindi í vélvirkjun
og hef rekið þjónustufyrirtæki í
greininni og útskrifað nokkra nema í vélvirkjun.
Eins og oft vill vera á langri ævi, á sér
einatt eitthvað skemmtilegt stað. Ég hef átt
þeirri lukku að fagna að hafa búið
með framandi þjóðum, kynnst menningu þeirra
og siðum,einnig hef ég ferðast víða
víða og fengið smjörþef af góðu
og illu.
Núna stunda ég kennslu
í Vélskóla Íslands og tek samhliða
því að mér matsmanns- og meðdómarastörf
hjá Héraðsdómum Reykjavíkur
og Vesturlands. Samhliða þessum hverstakslegu launastörfum
stunda ég framhaldsnám í Kennaraháskóla
Íslnds í upplýsinga- og tölvutækni
í skólastarfi.