|
Kynning
Smurolía
|
5. Eitt mikilvægasta atriði við umhirðu
véla og jafnframt það vandasamasta er að velja rétta
smurolíu.
Smurolía sem hentar einni vél getur verið
ónothæf á aðra. Það er ekkert eitt sem
slítur vél meir en óhrein smurolía.
Flestar smurolíusíur eru búnar hjárásarloka
sem opnar þegar mismunaþrýstingur yfir síuna
hefur náð hámarki. Eftir að hjárásarlokinn
hefur opnað hringrásar öll olían í kerfinu
ósíuð. Nauðsynlegt er að kynna sér leyfilegan
mismunaþrýsting yfir smurolíusíu viðkomandi
vélar.
Smurolían hefur ákveðna seigju sem hentar viðkomandi
vél, seigjan má hvorki vera of mikil né of lítil.
Seigjan hækkar við lækkandi hitastig og lækkar við
hækkandi hitastig. Til að minnka þessi áhrif er
sett bæti efni í olíuna af framleiðendum og sú
olía er nefnd fjölþykktarolía.
Þegar olía blandast óhreinindum þá hækkar
seigja hennar, þegar smurolía blandast eldsneyti þá
lækkar segja hennar. Í báðum tilfellum minnkar
smurhæfni olíunnar og nauðsynlegt er að endurnýja
hana.20
Smurolían hefur tvennan megin tilgang í vélinni.
Annar er að minnka núningsmótstöðu og hinn
er að flytja í burtu varma sem myndast við núninginn.
6. Kælivatnið er á vélinni til
að koma í veg fyrir misþenslu málma þar
sem varmamyndun er misjöfn og dreifa varmanum um alla málmhluta
vélarinnar, halda hitastigi vélarinnar sem stöðugustu
og flytja út úr vélinni umframvarmann.
7. Brennslu olían er varmagjafi vélarinnar, úr eldsneytinu
verður til allt aflið sem við fáum til ráðstöfunar,
reyndar með réttri blöndu við loft.Til að fá
fullkomin bruna þarf að blanda saman 1kg af olíu á
móti 14kg af lofti.
Nauðsynlegt er að hreinsa óhreinindi úr brennsluolíunni
áður en hún er flutt inn á eldsneytis tæki
og vél. Ráðlagt er að vera með forsíu
sem tekur mest af föstumóhreinindum og allt vatn úr
olíunni og eftir flutnings og fæði dælu systrasíur
sem kallast fínsíur til að taka öll föst óhreinindi
úr brennsluolíunni sem í henni kunna að vera
eftir forsíun.
Það er mín skoðun að flest vandamál varðandi
slit og bilanir í vél eigi rót sína að
rekja til illa hreinsaðrar brennsluolíu. Þar að leiðandi
er ákaflega brýnt að vanda hreinsun olíunnar
og koma þannig í veg fyrir ótímabært
slit og bilanir.
|