Athuga smurolíu á vélinni

Kynning

Smurolía

Vatn

Brennsluolía

Ræsigjafar

Vél í gangi

Niðurlag

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Númer 1 er að Athuga smurolíu á vélinni:


a) Olíuhæð á kvarða, á að vera á milli hámarks og lágmarks.
b) Lit á olíu, á að vera dökk brúnleit. Ekki svört og ekki grá.

Til að ath. smurolíu er notaður sérstakur kvarði sem oftast er nefndur olíukvarði og er teinn með flatkanti og merki fyrir hámark og lágmark á þeim enda sem vísar niður í olíubeðuna (olíupönnuna) á vélinni. Þessi teinn er tekinn úr slíðri sínu og olían skoðuð. Olíu hæðin á að vera á milli hámarks og lágmarks á kvarðanum.
Ef olían er við lágmark, þá er það ávísun á að bæta þurfi olíu á vélina. Eðlilegt er að vél brenni (eyði) smurolíu þegar hún er í gangi, magn það sem eðlilegt er að vélin brenni er gefið upp af vélaframleiðanda og er rétt að kynna sér það. Brenni vélin meira magni en upp er gefið af vélaframleiðanda er það vísbending um að vélin sé ekki í fullkomnu lagi, til dæmis að slit sé komið í strokkfóðringar og eða bulluhringi.
Ef olíu hæðin er fyrir ofan hámark á kvarða er það vísbending um að annar vökvi hafi blandast smurolíunni, ef litur olíunnar er eðlilegur að sjá er hugsanlegt að smurolían hafi blandast brennsluolíu sem með einhverjum hætti hefur komist í smurolíubeðuna, það er óeðlilegt og rýrir smurhæfni smurolíunnar. Það má oft merkja ef þefað er af olíukvarðanum ef grunurinn er á rökum reistur þarf að uppræta lekan og skipta um smurolíu og setja nýja olíu á vélina.
Ef liturinn er svartur og olían þykk er það vísbending um að olían sé óhrein af sóti (illa brenndu eldsneyti). Vélaframleiðandi ráðleggur olíuskipti eftir ákveðinn keyrslutíma rétt er að fylgja þeim leiðbeiningum. Sé olían orðin sótug og svört fyrir uppgefin notkunartíma er það vísbending um að vélin sé ekki í fullkomnu lagi og sé tildæmis með slitna bulluhringi og strokkfóðringar.
Ef litur olíunnar er gráleitur er það vísbending um að vatn eða sjór hafi blandast olíunni. Blandist vatn olíunni missir smurolían smureiginleika sína og þarf að uppræta vatnslekann strax og skipta um olíu og setja nýja smurolíu á vélina.

 

heim