Ég sjálfur

Fjölskyldan

Dagbókin

Námið

Starfið

Áhugamálin

Vefleiðangur

 

Nám Ásgeirs Guðnasonar

Ég stunda nám við Kennaraháskóla Íslands í upplýsinga- og tölvutækni í skólastarfi.

Náminu er skipt í nokkrar misstórar einingar. Upplýsingatækni og tölvumenning skóla eru 5 eininga lota sem er í umsjón Sólveigar Jakobsdóttur. Þar fór fram lestur efnis, umræður og vinna verkefna á webbord. Unnið var með hugtök og lagt inn í efnisbanka. Unnið var við efnisleit og kynningar auk þess sem heimildarritgerð var samin. Nám og kennsla á netinu er 5 eininga lota sem þær Salvör Gissurardóttir og Þuríður Jóhannsdóttir sáu um auk hönnunar á kennsluvefjum og vefsíðugerð sem er 2 eininga lota og námsumhverfis á vef og netsamskipta sem er 1 eininga lota. Nýting í skólastarfi er 1 eininga lota og er í umsjón Sólveigar Jakobsdóttur þar sem nemendur tóku þátt í eigindlegri rannsókn á notkunn barna á internetinu. Þá er ótalið lokaverkefnið sem er 1 eining.