|
|
Námskeið þetta er sérstaklega
ætlað eigendum mótorbáta, þó er öllum
áhugasömum um umhirðu véla bæði konum
og körlum boðið að taka þátt í námskeiðinu
í von um að læra megi á því.
Eina skilyrðið sem þáttakendur verða að uppfylla
til að geta tekið þátt í námskeiðinu
er að hafa aðgang að tölvu með nettengingu.
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti
sem ber að hafa í huga þegar vél í mótorbáti
(snekkju, seglskipi) er gerð tilbúin til notkunnar eftir að
hafa staðið ónotuð um hríð, umhirðu
vélarinnar á meðan hún er í notkun, frágang
vélarinnar fyrir geymslu í bátnum yfir vetrartíman
þegar báturinn er ekki í notkunn.
Námskeiði stendur í þrjár vikur, í
fyrstu vikunni verður farið yfir undirbúning fyrir gangsetningu,
í annari viku verður farið yfir eftirlit og umhirðu
á rekstrartíma vélarinnar og þriðja vikan
fer í að ganga frá vélinni til vetrar geymslu
og meta viðbrögð og vinnuframlag þáttakenda.
|