Ég sjálfur

Fjölskyldan

Dagbókin

Námið

Starfið

Áhugamálin

Vefleiðangur

 

Starf Ásgeirs Guðnasonar

Ég er kennari við Vélskóla Íslands og aðal kennslugreinar mínar eru vélstjórn, eðlisfræði, teikning og kælitækni. Ég hef þó einnig kennt smíðar, rafmagnsfræði og vélvirkjun. Á yfirstandandi skólaári hef ég verið umsjónarkennari með hraðbrautarnemendum og kvöldskólanemendum.

Í vélskólanum eru í kringum 200 nemendur á hverju ári og er aldursdreifing nemenda talsvert mikil, eða frá 16 til 60 ára aldurs.Kennt er í dagskóla frá kl:08 til 18 og í kvöldskóla frá kl:18- 22. Í dagskólanum geta eldri nemendur valið hraðbraut í nokkrum áföngum, þannig að kennslan er ansi fjölbreitt og mikil.Í skólanum er kennt eftir áfangakerfi og eru annir tvær á hverju skóla ári. Kennarar við skólan eru flestir komnir yfir miðjan aldur með mikla reynslu og langan starfsaldur. Flestir nemendur skólans eru piltar, en þær stúlkur sem lokið hafa 4.stigi skólans hafa getið sér einkar gott orð í atvinnulífinu.