Tæknisaga

Ég sjálfur

Fjölskyldan

Dagbókin

Námið

Starfið

Áhugamálin

Vefleiðangur

Kennsluvefur

Tæknisaga

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég heiti Ásgeir Guðnason og starfa sem kennari við Vélskóla Íslands á Rauðarárholti, ég hef á kennaraferli mínum kennt margar tæknigreinar sem kenndar eru við skólann.
Helstu áhugamál mín hafa verið ferðalög innanlands og utan, auk hverskyns veiðiskapar.
Til að svala áhugamálum mínum og fjölskyldunnar höfum við fjölskyldan fjárfest í nokkrum einföldum hlutum til að auðvelda okkur að ástunda áhugamálin hans "pabba"( mætti stundum halda að börnin hugsuðu). Má þar fyrst nefna að við eigum fjallajeppa á túttum, ekki svo ýkja stórum en? Mótorhjól er nauðsynlegt að eiga og er eitt slíkt Kínverskt til á heimilinu. Tvær haglabyssur og þrír rifflar, fimm veiðistangir auk flugu- og spúnasafns að ógleymdum önglum, línum og hjólum.
Því er ekki að neita að ég er og hef alltaf verið frekar veikur fyrir tækninýjungum og hef alltaf þurft að sitja á mér á því sviði, nóg er þó keypt samt, bílskúrinn hálffullur af allskyns tæknidrasli sem er löngu orðið úrelt og var kannski aldrei nothæft þótt nýtt væri.
Tæknibúnaður heimilisins til tölvuvinnslu og upplýsingaöflunar hefur aðeins vaxið frá fyrstu fjárfestingu sem átti sér stað á því sviði 1986. þá eignuðumst við hjónin tölvu með 40Mb hörðum diski og 14 tommu skjá og Dos stýrikerfi sú tölva hafði 51/2 " floppy drif síðan höfum við keypt fjórar tölvur og nú eru þrjár nýlegar tölvur á heimilinu, tvær borðtölvur önnur þeirra með pentium 2 örgjörva og 256 mb innra mynni með 17 tommu skjá og133Mhz klukkuhraða, hin mun minni með 15" skjá svo er fartölva með 700 Mhz klukkuhraða pentíum 3 örgjörva og 128Mb innra mynni og 14 tommu skjá. Tengibúnað við veraldarvefinn er sítenging (adsl) með 500kb hraða. Netkort er í báðum tölvum, geisladrif og floppy drif auk harðadisksins. Í borðtölvunum er einnig 100Mb zipdrif og brennari. Þrír prentarar eru til á heimilinu, einn nálaprentari og tveir bleksprautu og þar af annar fyrir litprentun en aðeins tveir þeirra eru í notkun og tengdir við tvær tölvur. Skanni og ljósritunarvél er til og tengd við aðra borðtölvuna.
Sjónvarpstæki eru til að nokkrum stærðum auk myndbandstækis og afruglara.
Á heimilinu eru nokkrir símar einn línusími (GSMS gamall sími með snúru) tveir gemsar (GSM) ,einn NMT og faxtæki. Ein stafræn ljósmyndavél með floppy disk til myndgeymslu og önnur stafræn kvikmyndavél er einnig á heimilinu. Til að vita hvar við heimilisfólkið erum stödd hverju sinni erum við með GPS staðarákvörðunar tæki og sjónauka. Öryggistalstöðvar eigum við þrjár sem notaðar eru eða rættara sagt voru þegar fjölskyldan fór í ferðalög fyrir tíma farsímana. Til að komast á milli staða hindrunarlaust höfum við fengið okkur og alið í nokkur ár tvo hesta, þá Jara bleikálóttan sjövetra klárgengan töltara undan Geysi/undan Ófeigi og Hrímnir gráan áttavetra klárhest með tölti undan Krapa/ undan Baldri.
Ekki má gleyma að nefna þá tvo sem halda húsinu heitu á meðan við tvífætlingarnir erum að heiman en það eru þeir ferfætlingarnir Kolur sem er Siams (oriental) og Grettir íslenskur fjósaköttur.
heim