Nemendur eiga að svara þessum spurningum
með því að leita á netinu. Allir byrja á
sama tíma og skrifa svörin niður á blað.
Sá sigrar sem fyrstur klárar og er með öll svör
rétt. Netföngin sem þið eigið að nota
eru:Landsvirkjun,
Orkuveita Reykjavíkur
og Orkuspá.
1. Hversu mikið rafafl er hægt að framleiða með
vatnsorku í Búrfellsvirkjun?
2. Hversu mikil er fallhæð vatnsins að hverflum Blönduvirkjunar?
3. Hvaða foss var fyrst virkjaður í Soginu?
4. Hvaða ár var fyrsti Sogsfossinn virkjaður?
5. Kröfluvirkjun er knúin með jarðgufu, hverjar
eru helstu gastegundirnar í jarðgufunni sem streyma upp á
yfirborðið með gufunni?
6. Hvað heitir yngsta vatnsaflsvirkjun Landsvirkjunar?
7. Með hvað löngu millibili er orkuþing haldið?
8. Hver er hiti gufunnar á Nesjavöllum 1000m undir yfirborði
jarðar?
9. Hve hátt yfir sjávarmáli stendur uppistöðulón
hæstu vatnsaflsvirkjunar Landsvirkjunar?
10. Vatn frá Nesjavöllum til Reykjavíkur er 85°C
heitt þegar því er dælt þaðan 27km.
Til Reykjavíkur, hvað hefur vatnið kólnað
mikið á leið sinni til Reykjavíkur?