Í TÚNINU HEIMA

Uppsveitir Árnessýslu

 

Ég er fæddur og uppalin í Árnessýslu þar er saga Íslands og örlög við hvert fótmál. Mig langar að leiða ykkur með mér um söguslóðir uppsveita Árnessýslu með hjálp krækja og góðra manna sem unnið hafa að samantekt fróðleiks um þær slóðir.
Svæðið nær frá Þingvöllum að Þjórsá og þar er að finna margar af helstu náttúruperlum og sögustöðum Suðurlands s.s. Þingvelli, Gullfoss, Geysi, Kerið, Laugarvatn, Skálholt, Þjórsárdal og Kerlingarfjöll svo fátt eitt sé nefnt. Uppsveitirnar eru í þægilegri fjarlægð frá Höfuðborgarsvæðinu u.þ.b. 100 km. og aðgengi að hálendinu er gott. Á svæðinu er löng hefð fyrir ferðaþjónustu og er atvinnulíf öflugt. Fjölbreytt framboð er af gistingu og dagsferðamöguleikar eru ótalmargir. Auk þess að státa af frægum náttúruperlum leggja Uppsveitamenn áherslu á að fræða gesti og tengja ferðaþjónustuna sögu, menningu og atvinnulífi.
Uppsveitir Árnessýslu ná yfir mjög stórt landsvæði. Stór hluti þess er óbyggðir.
Hérna átt þú að geta fengið allgóða mynd af þessu svæði og þannig undirbúið þig fyrir heimsóknina.

Gnægð er af heitu vatni og setur það svip sinn á menninguna, sundlaugar og heitir pottar eru á hverju strái.
Fjölbreyttir möguleikar eru á gistingu og veitingum á svæðinu. Valið er um gistingu á hóteli, gistiheimili, sveitabæ, farfuglaheimili, fjallakofa, sumarhúsi eða í tjaldi. Hópum er boðið upp á heimsóknir í gróðurhús, þar sem má fræðast um blómaræktun, grænmeti, ber, sveppi, lífræna ræktun og krydd. Bátasiglingar á Hvítá eru ævintýralegar. Sigling á Þingvallavatni, í senn fróðlegt og fallegt. Vatnasleðaleiga er á Svínavatni. Siglingar á Hvítárvatni á hálendinu eru nýjung. Fjölbreyttir möguleikar eru á lengri og skemmri hestaferðum í ógleymanlegu umhverfi og hestasýningum. Jeppaferðir á hálendið sniðnar eftir óskum hvers og eins. Byggðasafn er á Flúðum. Þjóðveldisbærinn og Stöng í Þjórsárdal. Skálholt og margar sögufrægar kirkjur standa gestum opnar.Í Laugarási er starfræktur vinsæll húsdýragarður.
Fjöldi kóra, hljóðfæraleikara og leikfélaga, standa fyrir skemmtilegum uppákomum allt árið.
Víða eru merktar gönguleiðir og einkennandi fyrir svæðið eru lítil fjöll eða fell sem allir fjölskyldumeðlimir geta klifið.Víða má fá veiðileyfi í ám og vötnum á svæðinu. Golfvellir eru víða á svæðinu, fjöldi sundlauga um alla sveit, heitir pottar og gufa.

Hér á eftir fara nokkrar hugmyndir að dagsferðum, sem einnig er kjörið að tengja saman og dvelja lengur á svæðinu.

Dagur 1. Geysir og Haukadalsskógur

Brottför frá Reykjavík, ekið sem leið liggur yfir Hellisheiði, um Grímsnes í Reykholt og þaðan framhjá Faxa og Tungnaréttum, áfram að Geysi. Eftir að hverasvæðið hefur verið skoðað er upplagt að fá sér léttan hádegisverð og bregða sér í sund á Hótel Geysi. Ekki má heimsækja þetta svæði án þess að fá sér góða göngu í Haukadalsskógi. Þar má finna merktar gönguleiðir við allra hæfi, jafnt sumar sem vetur. Eftir gönguferðina er haldið áfram að Gullfoss og valin leiðin yfir Brúarhlöð í gegnum Hrunamannahrepp, Flúðir og Selfoss til baka til Reykjavíkur.

Dagur 2. Flúðir

Brottför frá Reykjavík yfir Hellisheiði, gegnum Selfoss á Flúðir. Á Flúðum er skroppið í fjallgöngu eftir merktri gönguleið á Miðfell. Að lokinni fjallgöngu er gott að fara í sund á Flúðum og fá sér léttan hádegisverð á Hótel Eddu eða Grund. Þeir sem kjósa hestaferð fremur en fjallgöngu geta heimsótt Syðra- Langholt og brugðið sér á bak og golfarar tekið einn hring á golfvellinum að Efra-Seli. Skemmtilegt byggðasafn er að Gröf. Eftir vel heppnaða Flúðaferð er valin leið til baka um Brúarhlöð, litið við á Gullfoss og Geysi á leið til Reykjavíkur um Grímsnes.

Dagur 3. Laugarvatn

Brottför frá Reykjavík yfir Hellisheiði, Grímsnes og beygt til vinstri við Svínavatn að Laugarvatni. Á Laugarvatni má eyða góðum tíma, fara í sund og náttúrulega gufu, busla í vatninu eða taka bát á leigu. Göngugarpar geta valið milli fjölda skemmtilegra gönguleiða í nágrenni Laugarvatns. Á Laugarvatnsfjall er tilvalin fjölskyldugönguleið um 500 m upp á brún. Í Stóragil-Eystra er um 15-20 mín ganga. Nánari upplýsingar um þetta er að finna í bæklingi um Laugarvatn. Hádegisverð má fá á Eddu hótelum eða Lindinni. Hestaáhugamenn geta brugðið sér í stutta eða langa ferð í frábæru umhverfi frá Efstadal. Aðrir kunna að kjósa minigolf eða golf. Eftir góðan dag á Laugarvatni má keyra Lyngdalsheiði til Reykjavíkur um Þingvelli.

Dagur 4. Grímsnes

Brottför frá Reykjavík ekið austur Hellisheiði. Fyrsta stopp er í Þarastarskógi þar sem fallegt er að ganga um og síðan við Kerið. Á þessum slóðum eru góðir golfvellir. Það er hægt að keyra ýmsar skemmtilegar leiðir í Grímsnesinu. Aka má niður að Hestfjalli framhjá Kiðjabergi þar sem sýslumannshúsið, elsta íbúðarhús í Árnessýslu er. Sólheimavegur er hringvegur og gaman er að líta við í Listhúsinu og höggmyndagarðinum á Sólheimum, eða kaupa þar handverk og plöntur. Ævintýramenn geta brugðið sér á vatnasleða á Svínavatni eða hestbak frá Hrauni. Leiðin til baka liggur um Sogsveg fram hjá Álftavatni að Írafossi og Ljósafossi þar sem gott er að bregða sér í sund í Ljósafosslaug. Áfram er haldið gegnum Þingvelli til Reykjavíkur.

Dagur 5. Þingvellir

Dagsferð til Þingvalla þarf vart að kynna, en ekki er víst að öllum sé kunnugt um að í Þjóðgarðinum er boðið upp á skipulagða dagskrá á sumrin. Farið er í gönguferðir með leiðsögn starfsfólks. Þetta eru fróðlegar og skemmtilegar ferðir fyrir börn og fullorðna Ennfremur er óhætt að mæla með siglingu á vatninu með Þingvallasiglingum. Frábærar ferðir með leiðsögn heimamanna, þar sem gestir fræðast um gróðurfar, dýralíf og líf manna við vatnið fyrr og nú. Veitingar og hressingu má fá á Hótel Valhöll og í Þjónustumiðstöðinni. Allar upplýsingar í Þjónustumiðstöðinni á Þingvöllum.

Dagur 6. Skeið

Brottför frá Reykjavík yfir Hellisheiði gegnum Selfoss á Skeið. Lítið við í Reykjaréttum og Áshildarmýri. Komið við á Húsatóftum þar sem farið er í spennandi hestaferð langa eða stutta, hádegisverður og slappað af í sundi í lauginni að Brautarholti á eftir. Síðan er ekið í gegnum Laugarás þar sem litið er inn í húsdýragarðinn áður en haldið er heim á leið með viðkomu í Skálholti í kaffi.

Dagur 7. Grafningur

Brottför frá Reykjavík, ekin mjög falleg leið meðfram hitaveitulögninni að Nesjavallavirkjun. Þegar komið er að Nesjavöllum er hægt að sjá vel yfir til allra átta af útsýnispalli, þar sem ýmsar upplýsingar er að finna. Boðið er upp á veitingar í Nesbúð. Fjölmargar gönguleiðir hafa verið merktar á þessum slóðum, sem bjóða upp á útivistarmöguleika jafnt sumar sem vetur. Hægt er að leigja sér bát eða veiða í Úlfljótsvatni og bregða sér í sund í Ljósafosslaug. Leiðina til baka má velja um Þingvelli eða Grímsnes til Reykjavíkur.

Dagur 8. Biskupstungur

Brottför frá Reykjavík, ekið sem leið liggur yfir Hellisheiði um Grímsnes, austur í átt að Reykholti. Skömmu áður en komið er að Reykholti er beygt til vinstri Reykjaveg yfir Torfastaðaheiði og ekið með Hlíðum að Geysi í Haukadal. Þaðan liggur leiðin að Gullfossi og hringnum er síðan lokað með því að keyra yfir gömlu brúna yfir Tungufljót framhjá Tungnaréttum og Faxa í Reykholt. Í Reykholti er kjörið að bregða sér í sundlaug með rennibraut og heitum pottum og fá sér léttan hádegisverð í Aratungu. Áfram er haldið, komið við á söguslóðum í Skálholti og Litli Húsdýragarðurinn í Slakka, Laugarási heimsóttur. Að því loknu er ekið um Skeið í gegnum Selfoss til baka til Reykjavíkur um Þrengsli.

Dagur 9. Þjórsárdalur

Brottför frá Reykjavík, gegnum Selfoss sem leið liggur austur í Árnes. Þar er ný sundlaug sem gaman er að prófa og tjaldstæði með heitum potti. Í Þjórsárdal má bregða sér í skógarferð eða sund í sérkennilegri útilaug. Áhugavert er að skoða Sögualdarbæinn og einnig bæinn Stöng sem var grafinn upp, en Heklugos lagði dalinn í eyði árið 1104. Gjáin og Hjálparfoss eru heimsótt og góður göngutúr er frá Stöng upp að Háafossi, en þangað er einnig jeppafært. Hestamenn geta brugðið sér á bak á Ásólfsstöðum, aðrir kjósa að kíkja á fjölbreytt handverk í Minni-Mástungu. Eftir góðan dag í Þjórsárdal er ekið sömu leið til baka í Árnes þar sem boðið er upp á hressingu í versluninni Árborgu. Síðan má velja um heimferð til Reykjavíkur gegnum Selfoss eða í Laugarás, Skálholt og um Grímsnes.
Fólkið í uppsveitunum er ósköp venjulegt. Það vill taka vel á móti gestum og reka ferðaþjónustuna undir kjörorðunum "GÆÐI OG GESTRISNI".

Siðir
Sinn er siður í landi hverju. Það sem hér er sagt um siði og venjur á að mestu leyti við alla Íslendinga, enda erum við mjög einsleit þjóð.

Fólkið
Hérna færð þú að kynnast örlítið fólki sem býr í uppsveitunum.

Saga
Hvar sem þú ferð í uppsveitunum eru merkir staðir úr sögu landsins.
Það eru engar ýkjur að telja þetta mesta sögusvæði landsins.

Kirkjur
Íslendingar eru langflestir evangelísk-Lúterskrar trúar. Um allt land eru litlar sveitakirkjur, hver með sín sérkenni. Við eigum margar kirkjur og meira að segja eina dómkirkju, sem er í Skálholti.

Fyrirtæki
Á undanförnum áratugum hefur fyrirtækjum af ýmsu tagi verið að fjölga í uppsveitunum. Vissulega er landbúnaðurinn ennþá stærsta atvinnugreinin, en þjónusta og iðnaður vaxa hratt.

Stofnanir
Eftir því sem fólk gerir meiri kröfur um opinbera þjónustu í nágrenni við sig, fjölgar stofnunum á vegum sveitarfélaganna eða einkaaðila, sem sjá um þennan þátt.

Menntun
Hérna er listi yfir skóla á svæðinu. Sumir þeirra eru komnir með eigin heimasíður og þú getur kynnst þeim héðan.
Íslendingar eiga mikið safn þjóðsagna. Þekktasta safn slíkra sagna eru Þjóðsögur Jóns Árnasonar, sem víða eru til á íslenskum heimilum. Hérna eru nokkrar endursagðar þjóðsögur og sagnir sem tengjast uppsveitunum.

Orku og háhitasvæði eru mörg og áhugaverðir viðkomustaðir fyrir ferðamenn sem fara um uppsveitirnar.
Auk alls þess sem að framan er talið er veitt mikil þjónusta við ferðalanga og aðra þá sem heimsækja uppsveitir Árnessýslu.

Ég vil benda gestum á að skoða vefinn á vefslóðinnni http://www.icefire.is/index.htm. sem er gæddur miklum fróðleik og fjölda fagurra mynda.
Þessi vefur er afrakstur vinnu nemenda og kennara við Menntaskólann að Laugarvatni og er nefndur ÍSELD. Ég hef notað texta og krækjur úr þessum vef til skýringar í umfjöllun minni um uppsveitir Árnessýslu. Vil ég færa nemendum og kennurum við Menntaskólan á Laugarvatni þakkir fyrir framlag þeirra til upplýsingar almennings um fjölbreytileika í skoðunarferðum um mína heimabyggð uppsveitir Árnessýslu.
Ásgeir Guðnason

 

heim

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

index