Inngangur

Hér lítur dagsins ljós kennsluefni ætlað til kennslu í myndmennt á mið- og unglingastigi grunnskólans. Meginmarkmið með því er að stuðla að aukinni þekkingu nemenda á grunnþáttum myndlistar og auka um leið orðaforða þeirra á þessu sviði. Við byggjum kennsluefnið á þeirri sannfæringu, að til þess að gera nemendum kleift að tileinka sér og nota hugtök á sviði myndlistar sé mikilvægt að láta þau fást við þau í sinni eigin vinnu. Þannig er námsefnið gert úr garði með það fyrir augum að nemendur öðlist ekki einungis þekkingu á grunnþáttum myndlistar heldur nemi þeir jafnframt orðaforðann sem notaður er til þess að lýsa myndlist.

Þessi vefur er unnin út frá lokaritgerð til B.Ed prófs eftir Ásthildi Jónsdóttur og Elenóru Jónsdóttur sem lokið var vorið 1996 undir handleiðslu Torfa Hjartarssonar