Kennsluskipulag


Smellið á myndirnar til þess að sjá fleiri myndir
 Kennsluvika  Viðfangsefni
1. - 3. vika  Unnar verða óhlutbundnar myndir út frá línum. 
Leitað verður svara við spurningum eins og: 
Hvers vegna erum við ólík? 
Hvað gerir okkur ólík? 
Hvernig getum við séð persónueinkenni listamanna?
4 - 7 vika 
Unnar verða expressjónískar myndir með hliðsjón af listaverkum eftir t.a.m. Pablo Picasso, Edvard Munch og Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur. 
Leitað verður svara við spurningum eins og: 
Hvernig er reiði á litin? 
Getum við tengt liti og tilfinningar saman á einhvern hátt? 
Hvernig er hægt að tjá tilfinningu á blaði? 
Hvernig tjáum við ólíkar tilfinningar? 
Hvernig greinum við sorg ef við sjáum ekkert tár?
8. - 10. vika  Tilfinningagrímur 
Unnar verða grímur sem tjá mismunandi tilfinningar fólks.
11. - 13. vika  Auglýsingar og áhrifamáttur þeirra. 
Nemendur vinna klippimyndir af auglýsingum út frá mismunandi þema.
14.  vika  Óskir og þrár 
Hvað þráum við? 
Hvers vegna langar okkur í þá hluti sem við þráum? 
Eru allar óskir eins? 
Þráum við kannski suma hluti vegna þess að vinir okkar þrá þá? 
Hversu miklu ráða auglýsingar um óskir okkar?
15. vika jólaföndur
16. - 17. vika frh. Óskir og þrár 
17. - 19. vika Nemendur hanna og smíða hljóðfæri
20. - 22. vika Tónlist og texti
23. - 24. vika Leiklist - Nemendur vinna spunaæfingar út frá umfjöllun um mismunandi mannleg viðbrögð.
25. - 28. vika Áróðursveggspjald
29. - 34. vika Sameiginlegt útilistaverk - heimsókn á listviðburð.

Ásthildur B. Jónsdóttir
Myndlistarkennari Hagaskóla
Síðast uppfært 3. september 1999