![]()
Markmiðið með vefnum er að þjónusta alla þá er starfa innan menntageirans, stjórnendur, foreldra og nemendur. Þjónustan felst í söfnun ýmiskonar gagnlegra linka, birting á ýmiskonar gögnum, upplýsingar um styrki, námskeið og margt fleira.
Að vefnum standa ACT Department of Education & Community Services.
Vefurinn er opinber og að öllum líkindum kostaður með opinberu fé, á honum eru engar auglýsingar.
Vefurinn er mjög aðgengilegur sem auðveldar nemendum, kennurum
og foreldrum að fá yfirsýn yfir heildarskipulag menntunar
og þjónustu sem í boði er á svæðinu.
Hönnunin er mjög einföld sem auðveldar óvönum
að leita eftir upplýsingum. Mikið er um flokkaða vefi,
vefurinn vísar inn á HOT BOT leitarvélina.
Til baka
American Federation of Teachers
http://www.aft.org/
AFT samtökin voru stofnuð árið 1916.
Markmiðið er sð þjóna öllum þeim sem koma að menntun, heilbrigðismálum og þjónustu við almenning. AFT er þverfaglegt samband milli allra þessara stétta. Vefurinn hefur fjölþætt hlutverk að vera gagnagrunnur fyrir mikið magn fræðsluefnis og verkefna, birta auglýsingar um lausar stöður og birta veita upplýsingar um námskeið, daglega fréttapistla o.fl.
AFT rekur þennan vef og er hann kostaður með opinberum styrkjum og auglýsingum frá undirstofnunum AFT eins og t.d. bókabúðinni þeirra. Hægt er að gerast félagi í AFT og þá eru félagsgjöldin notuð sem hluti af rekstrarfénu.
Krækjurnar á þessum vef eru óteljandi. Vísað
er í marga gagnlega vefi sem nýtast beint í kennslu.
Á þessum vef er sagt frá mörgu mjög fræðandi
þar á meðal The Learning Line sem er símanúmer
sem kostar ekkert að hringja í til að fá upplýsingar.
Þegar kennari, foreldri eða nemandi hringir í þetta
fría númer svarar símsvari sem gefur upplýsingar
um námsverkefni sem henta nemendum á aldrinum 8-12 ára.
Ný verkefni eru lesin inn í hverri viku. Gagnagrunnurinn
sem liggur að baka vefnum virðist mjög vel uppbyggður.
Til baka
Efst á síðu
Finnska menntanetið Trade union of education http://www.oaj.fi/
Samtökin voru stofnuð 1973 en samvinna milli allra kennarastétta
í Finnlandi hófst fyrst árið 1893. Meðlimir
samtakanna eru kennarar af öllum aldursstigum og fræðslustofnanir
allt frá leikskólum upp í háskóla. Meðlimir
samtakanna eru nú 104 000. 95 % kennara í Finnlandi tilheyra
þessum samtökum, þeir greiða 1,0 - 1,5% af laununum
sínum til samtakanna
Vefurinn er á finnsku en hluti af honum er þýddur
á ensku og sænsku.
Ég er að fá finnskan kollega minn í heimsókn
14 febrúar- hún mun fara með mér í notagildi
vefsins.
Til baka
Efst á síðu
HomeworkCentral.com http://www.homeworkheaven.com/
Homework Central er ný beintengd miðstöð sem safnar
saman upplýsingum um skólamál fyrir öll aldursstig.
Vefurinn er með ókeypis aðgang og er ritskoðaður
með tilliti til barna.
Vefnum er ætlað að þjóna:
Kennurum t.d. með því að bjóða upp
á meira en 10 000 verkefni sem tengd eru við 75 000 kennslufræðilegum
rannsóknum.
Nemendum með því að bjóða upp á
leiki sem stuðla að námi, prófa undirbúningi.
Vefurinn veitir upplýsingar um háskóla &
námsstyrki.
Foreldrum með því að veita upplýsingar
um börn og Netið, internet leiðbeiningar og heimalærdóm.
Þessi vefur er sérstaklega hannaður fyrir Netið
með möguleika margmiðlunar að leiðarljósi.
Vefurinn er rekinn af einkaaðilum sem lifa á auglýsingatekjum.
Þessi vefur bíður upp á margar gagnlegar slóðir
auk þess sem þar er að finna 14,000 verkefni, kennsluáætlanir
, verkfæri fyrir netið, mánaðarlega efnisflokka
(þemu). Á síðunni er leitarvél.
Til baka
Efst á síðu
Teachers@workhttp://teachers.work.co.nz/
Vefsíðan skiptist í nokkra efnisflokka sem eru námsgreinar,
rannsóknir, tæknimenntun og feedback sem gefur kost á
að leita svara við spurningum.
Þessi vefur er hannaður með það að markmiði
að styðja kennslufræðilegar rannsóknir.
Hér er að finna meira en 3000 flokkaðar vefsíður
sem tengjast menntamálum á margskonar hátt. Síðurnar
eru flokkaðar bæði eftir aldri og kennslugreinum
Vefurinn þjónustar kennara í Asíu, Ástralíu,
Bandaríkjunum og Nýja-Sjálandi. Vefurinn státar
sig af 1000 bestu vefsíðunum með kennslufræðilegu
efni.
Síðan er kostuð með auglýsingum og einhverjum opinberum styrkjum. Einnig á sér stað verslun í tengslum við vefinn.
Hér virðist um einkafyrirtæki að ræða sem rekið hefur verið síðan 1997. Hér er einungis um vefræna starfsemi að ræða.
Vefurinn kynnir tíu vinsælustu vefsíður hvers mánaðar. Vefurinn er rekinn í tengslum við gagnagrunn sem bíður upp á leit.
Emu danska menntanetið
http://emu.dk/