Húsráðandi heitir Ásrún Tryggvadóttir grafíklistamaður og lektor við Kennaraháskóla Íslands.
Hér er ég vegna áhuga á tölvumyndagerð og tilrauna á því sviði.
Ég deili þeim áhuga með öðrum listamönnum um allan heim. Við erum sammála um að við höfum öðlast nýtt áhald sem gefur fjölbreytta og spennandi möguleika. Möguleika sem við erum rétt að byrja að notfæra okkur þó svo að tæknin sé búin að vera til staðar um þó nokkuð langan tíma.
Annar möguleiki sem tölvan býður upp á er að listamenn geta haldið kynningar og sýningar á verkum sínum um alla veröld á sama tíma án þess að fara úr húsi.
Í gegnum tölvusamskipti geta listamenn skiptst á skoðunum og tengst starfsfélögum sem þeir hefðu annars aldrei haft tækifæri til að kynnast.
Áhugaverðir staðir á alnetinu
Í tilraunaskyni opna ég í dag

Ég opna með eigin sýningu sem nefnist Leikur að steinum
Verkin eru unnin alfarið í tölvu og hafa aldrei verið prentuð og verða það ekki endilega.
Í framtíðinni mun galleríið væntanlega sýna verk listamanna sem rekja hugmyndir sýnar til náttúru Íslands, jarðfræði og veðurfars.