3. bekkur verkefni
1. Nemendur búa til nafnspjald. Hver og einn finnur sína stafi og mynd sem þeim finnst falleg í blaðinu og líma á karton sem hægt er að láta standa á borðinu.
2. Nemendur útbúa merkispjöld fyrir alla fjölskylduna.
3. Allir velja sér eina mynd í blaðinu og líma á sameiginlegt karton. Síðan er spjaldið skoðað og rætt um hverja mynd og hvers vegna hún var valin.
4. Nemendur velja sér staf og klippa út margar gerðir af honum og líma á blað.
5. Finna stærsta stafinn í blaðinu og þann minnsa.
6. Nemendur teikna myndir af nafnorðum, sagnorðum og lýsingarorðum sem þeir finna.
7. Nemendur klippa út myndir af mat og líma á blað.
8. Skoða hvar birtast myndir af mat í blöðunum og opna þannig umræður um hollustu og heilbrigði.
9. Allir fá ákveðið blaðsíðutal og eiga að segja frá eða skrifa á blað hvað er á tiltekinni blaðsíðu.
10. Nemendur finna dagbók blaðsins og skoða hvaða upplýsingar er þar að finna.
11. Nemendur klippa út myndasögur og búa til nýjan texta við þær.
12. Klippa út mynd með frétt og búa til nýjan texta þar sem fram kemur hvað er að gerast á myndinni.
13. Nemendur teikna mynd og búa til sýna fyrirsögn við myndina.
14. Klippa út margar fyrirsagnir og líma á stórt blað velja nokkrar til að ræða.
15. Klippa út mynd af einhverjum hlut í blaðinu og semja stutta lýsingu á honum.