Verkefni fyrir 7.bekk

Á hverjum degi eru blöðin full af ýmsu efni. Við getum skipt blöðunum niður í ákveðna efnisþætti þar sem tekin eru fyrir ákveðin efni.

Fréttir – innlendar og erlendar Landið
Höfuðborgarsvæðið Leiðari
Íþróttir Veðurspá
Sjónvarps- og útvarpsdagskrá Bíóauglýsingar
Gagnrýni Menning
Tilveran - fólk í fréttum Dagbók
Íslendingaþættir – afmæli Velvakandi
Lesendabréf – skoðun Myndasögur
Auglýsingar – smá- og raðauglýsingar Þjónusta
Minningargreinar Umræða – innsendar greinar
Viðskipti Peningamarkaðurinn
Ýmsar greinar Listir

Fréttir – innlendar og erlendar, landið og höfuðborgarsvæðið

Á hverjum degi birtast margar fréttir alls staðar að úr heiminum. Kjörið tækifæri til að fræðast um málefni líðandi stundar. Einnig má nota þær til landafræðikennslu t.d. með því að finna hvar fréttirnar gerðust o.s.frv.

1. Velja eina frétt sem allir eiga að lesa, svo er hún rædd. T.d. hvað gerðist og hvar (finna það á korti). Ræða saman um fréttina og jafnvel þann stað sem hún gerðist á.
2. Allir lesa eina fyrirsögn og ræða um hvað fréttin muni fjalla um. Eftir umræður lesa allir fréttina og bera svo saman við umræðurnar sem á undan voru. Niðurstöðurnar eru svo ræddar.
3. Lesa frétt og búa til nýja fyrirsögn.
4. Nemendur velja sér eina frétt og gera útdrátt úr henni.
5. Velja eina frétt og klippa út og líma í bók. Texti skrifaður með um hvað fréttin var og hvers vegna hún var valin.
6. Klippa út mynd sem fylgir frétt og skrifa nýja frétt. Annað hvort upp úr þeirri sem var í blaðinu eða búa til nýja.
7. Finna hvar í heiminum frétt gerðist og finna upplýsingar um landið.
8. Merkja inn á kort (heimskort fylgisíða 4) hvar frétt gerist (landið) og segja í stuttu máli hvað gerðist.

Leiðari

Að öllum líkindum hafa fæstir nemendur lesið leiðara blaðanna. Gott er að vekja athygli nemenda á að leiðari er grein ritstjórnar um málefni líðandi stundar.

1. Allir lesa leiðarann og ræða efni hans að því loknu.
2. Klippa út upplýsingar um blaðið sem eru á sömu síðu og leiðari.

Íþróttir

Íþróttaefni blaðanna er yfirleitt nokkrar blaðsíður. Þar er að finna mikið efni þar sem flestir finna eitthvað við sitt hæfi.

1. Hver nemandi finnur sér grein við sitt hæfi, klippir hana út, límir í bókina sína og skrifar nokkur orð um hvað greinin var og hvers vegna hann valdi hana.
2. Hver nemandi velur sér eina íþróttamynd og skrifar stutta grein um hana.

Veðurspá

Í hverju blaði birtist veðurspá hérlendis og erlendis. Gott er að fara yfir skýringar með kortum og ræða um á hverju veðurspá byggist og hversu áreiðanleg hún er.

1. Fylgjast með veðurspá í eina viku. Skrá niður upplýsingar samkvæmt veðurkorti í blöðunum og einnig hvernig veðrið var í raun og veru (fylgisíða 5). Eftir hvern dag má svo bera saman spá og raunverulegt veðurfar.
2. Klippa út skýringar með veðurkorti og líma í bók. Ræða um hvað merkin þýða.
3. Skrifa stutta lýsingu á veðurhorfum dagsins.
4. Veður víða um heim - merkja inn á heimskort (fylgisíða 4) hitastig og skýringar.

Útvarps- og sjónvarpsdagskrá, dagbók, kvikmyndir, leikhús, þjónusta, dagbók, tilveran, Íslendingaþættir, menning, gagnrýni og listir

Gott er að vekja athygli nemenda á að í hverju blaði er að finna ýmsar hagnýtar upplýsingar, t.d. dagskrá sjónvarps og útvarps, heimsóknartíma sjúkrahúsa, kvikmynda- og leikhúsauglýsingar, ýmislegt sem tengist menningu og listum, gagnrýni á leikrit og kvikmyndir o.fl.

1. Nemendur velja einn dagskrárlið sem þeir hafa áhuga á að sjá og segja hvers vegna.
2. Finna hvað er á dagskrá Ríkissjónvarpsins kl. 21:20 og hvenær dagskrárliðurinn hófst og hve lengi hann stendur yfir.
3. Finna út hve margir fréttatímar eru á Ríkisútvarpinu á sólahring.
4. Klippa út auglýsingu um mynd sem nemandi hefur séð og gagnrýna hana.
5. Klippa út mynd sem nemanda langar til að sjá og segja frá hvers vegna.
6. Klippa út merki allra kvikmyndahúsanna og búa til sitt eigið merki á kvikmyndahús.
7. Hvaða leikrit eru sýnd næsta laugardag?
8. Finna heimsóknartíma sjúkrahúsanna og skrá hjá sér.
9. Skrifa niður orð dagsins.
10. Hverjir eiga afmæli í dag? Segja hvað þeir heita og hve gamlir þeir eru.
11. Búa til afmælistilkynningu um ömmu, afa, frænku, frænda, mömmu eða pabba.
12. Skrifa upp og myndskreyta ljóð dagsins.
13. Stjörnuspá – klippa út stjörnuspána sína í öllum blöðunum og líma í bókina. Bera spárnar saman og segja sitt álit á stjörnuspám.
14. Búa til stjörnuspá morgundagsins fyrir vin eða einhvern úr fjölskyldunni.

Fólk í fréttum

Hér eru ýmsar greinar af frægu fólki bæði á Íslandi og erlendis.

1. Nemendur velja sér eina grein af fólki í fréttum, klippa hana út, líma hana í bók og segja frá hvers vegna þessi grein var valin.

Velvakandi, bréf til blaðsins og skoðun

Í þessum efnisþáttum gefst fólki kostur á að hringja eða senda bréf og segja sína skoðun á ýmsum málum eða auglýsa eftir einhverju sem hefur tapast eða fundist.

1. Nemendur lesa Velvakanda og segja í stuttu máli um hvað er fjallað.
2. Auglýsa eftir úlpunni sinni sem týndist um daginn.
3. Velja sér eitt lesendabréf og segja um hvað það fjallar. Ertu sammála því sem skrifað er eða ekki? Svara bréfinu og færa rök fyrir svari sínu.
4. Rita bréf til blaðsins um eitthvað sem liggur nemendum á hjarta t.d. um eitthvað sem þeim finnst vanta í hverfið sitt. Muna eftir að hafa inngang, meginmál og lokaorð.
Myndasögur

Flestir nemendur hafa lesið myndasögur í dagblöðum. Vekja mætti athygli þeirra á hvernig myndir og texti vinna saman í myndasögum.

1. Velja sér eina myndasögu, klippa hana út og líma í bókina sína. Útskýra um hvað hún fjallar.
2. Nemendur búa til sína eigin myndasögu.

Auglýsingar

Vekja athygli nemenda á auglýsingum í dagblöðum. Hversu mikilvægar eru þær blöðunum og hvaða upplýsingar þurfa að koma fram í auglýsingu (t.d. hvað er verið að selja, hvað kostar það, hvar er hægt að kaupa það o.fl.)?

1. Velja sér eina athyglisverða auglýsingu, klippa hana út og segja frá hvað vakti athygli og hvers vegna.
2. Búa til eigin auglýsingu og muna hvaða nauðsynlegar upplýsingar þurfa að koma fram.
3. Nemendur vinna tveir eða fleiri saman og finna sér auglýsingu í dagblöðunum. Einn er sölumaður og aðrir eru kaupendur, einn eða fleiri, gerið leikþátt út frá auglýsingunni.

Viðskipti og peningamarkaður

Á þessum síðum koma fram ýmsar upplýsingar varðandi hlutabréf og gengi íslensku krónunnar. Oft eru töflur og gröf notuð við útskýringar og því gott tækifæri til að sýna nemendum hvernig við lesum úr slíkum upplýsingum.

1. Hve margar danskar krónur færðu fyrir 10.000 íslenskar miðað við gengið í dag?

Minningargreinar

Vekja athygli nemenda á hve mikilvægt er að segja frá andláti fólks og tilkynna það í fjölmiðlum. Kjörinn vettvangur til að ræða um minningargreinar sem eru líklegast sér- íslenskt fyrirbæri.

Myndir

Með mörgum fréttum og greinum birtast myndir af fólki, landslagi, dýrum o.fl. Gott er að ræða gildi mynda með texta og hvernig myndin hjálpar okkur að tengja textann við þann stað eða þann aðila sem á í hlut eða verið er að fjalla um.

1. Finna eina athyglisverða mynd í blöðunum, klippa hana út og líma í bókina sína. Segja frá af hverju eða hverjum myndin er og af hverju hún vakti athygli.
2. Finna myndir af þekktum persónum í blöðunum, klippa þær út og líma í bókina og skrifa undir hver er á myndinni og hvað hann/hún gerir.
3. Klippa út myndir af fólki og búa til skopmynd með því að skeyta mörgum myndum saman í eina.