Ég heiti Auður Huld Kristjánsdóttir og er nýorðin 32 ára. Ég er fædd og uppalin í Reykjavík. Sambýismaður minn og tilvonandi eiginmaður er Jóhann Þór Sverrisson. Hann er eins og ég fæddur og uppalinn í Reykjavík á því herrans ári 1971. Það er því líklegt að við getum sagt að börnin okkar séu ekta Reykvíkingar. En við eigum tvær litlar sætar dúllur. Þær eru eins árs síðan í nóvember, þær eru tvíburar og eru miklar vinkonur og þurfa helst að gera allt eins. Þær eru mjög líkar enda eineggja. Mér finnst það algjör forréttindi að eiga þessar dúllur því það er frábært að fylgjast með þeim og hvernig samband þeirra er. Það fyrsta sem þær gera þegar þær vakna er að athuga með hina. Ef hún er sofandi þá er vinsælt hjá þeirri sem er vakandi að reyna að ná í gegnum rimlana til þess að vekja hana með því að strjúka hárið!! Ótrúlega sætt!!

En sem sagt ég útskrifaðist úr KHÍ 1997 og síðan hef ég starfað við Breiðagerðissskóla. Ég var umsjónarmaður skólavdagvistarinnar og forfallakennari. Einnig var ég umsjónarkennari í tvö ár en áfram með skóladagvistina. Ég átti að eiga stelpurnar 16.des. 2001 en þurfti að hætta að vinna í sept. Ég var svo lögð inn á spítala 12. nóv og sá fram á tveggjamánaða

legu ÚF PÚF...en í byrjun nóvember var ég orðin svolítið lík fíl og önnur stelpan farin að borða frá hinn og þá var ákveðið að bíða ekki lengur og skera gat á magann og ná í liðið!! Þær fæddust s.s. 5.nóvember 6 vikum fyrir tíman. Þær voru 8 og 9 merkur en sprækar og fínar og þurftu ekki einu sinna að fara á vökudeild eins og búist var við. Ég var í heildina 5 vikur á spítalanum og held að ég sé búin að fá nægan skammt í bili.........

Síðan í sept. 2001 hef ég verið í barneignarleyfi og verð það fram í maí 2003. En ég hef ekki setið auðum höndum þar sem ég þarf alltaf að hafa aðeins of mikið að gera. Ég hef stjórnað verkefni sem heitir Dagblöð í skólum en þar er ég milliliður skólanna, DV og Moggans. Auk þess að ég er í framhaldsdeild KHÍ í námi sem heitir Kennslufræði og námsefnisgerð.