Nám og kennsla á netinu
Nýting í skólastarfi
verkefni 2
Ég er grunnskólakennari og nemi í framhaldsnám í kennslufræði og námsefnisgerð. Ég hef starfað við Breiðagerðisskóla en er þetta skólaár í barneignarleyfi. Ég hef ekki reynslu í að kenna upplýsingatækni og tel mig því byrjanda á þessu sviði. Ég hef mikinn áhuga á að skoða hvernig hægt er að nýta UT í kennslu.
Áhugasvið mitt er að nota dagblöð sem kennsluefni. Ég hef verið umsjónarmaður dagblaða í skólum en það felst í blaðasendingum og verkefnabókum til nemenda og kennara. Þetta er samstarfsverkefni Morgunblaðsins, DV og Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur. Verkefnið er rétt að byrja á Íslandi en þetta hefur lengi tíðkast erlendis og eru til margar síður um þetta efni t.d. avis i skolen og NIE. Þarna er að finna ýmsar upplýsingar fyrir kennara hvernig hægt er að vinna með dagblöðin. Hugmynd mín er að koma upp íslenskri síðu fyrir dagblöð í skólum. Þar ætti að vera hægt að finna upplýsingar um verkefnið á Íslandi, verkefni fyrir kennara, vefleðangrar um fjölmiðla á vefnum, tengingar í erlendar síður ofl.
Það má því segja að áhugasvið mitt innan UT sé hvernig við getum nýtt fjölmiðla á vefnum sem kennsluefni. Þá sé ég fyrir mér að við getum verið að vinna verkefni t.d. í landafræði eða samfélagsfræði með því að finna fréttir frá ákveðnu landi og kanna þannig hvað er að gerast þar og með því að leita í gagnasöfnum finnum við meiri upplýsingar. Af sjálfsögðu getum við líka nýtt alla texta til móðurmálskennslu eða kennslu í öðrum tungumálum.
Eins og áður sagði tel ég mig byrjanda á sviði UT og hef því verið að reyna að skoða síður sem gætu hugsanlega nýst mér sem almennum kennara. Mér finnst margt spennandi sem er verið að gera og vil ég þar t.d. nefna Menntagáttina sem ég tel geta verið góð leið fyrir mig til að fylgjast með auk þess sem ég gæti hugsanlega náð mér þar í verkefni eða gert mín verkefni aðgengileg öðrum. Einnig fannst mér spennandi að skoða vefin hennar Hörpu Hreinsdóttir þar er að finna ýmsar hugmyndir.
Það sem mér finnst mest há mér sem kennara er að komast í tölvur með nemendur. Ég var svo "heppin" að fá 3 tölvur í mína stofu haustið 2000 en þá vildi svo illa til að þær voru ekki nettengdar og þeim fylgdi ekki prentari. Þannig að ég gat takmarkað nýtt mér þær til undirbúnings og aðeins notað þær fyrir nemendur til að vinna með kennsluforrit. Mér fannst því áhugavert að lesa grein Láru Stefánsdóttur Þarfagreiningu og áætlanir í upplýsingatækni þar eru góðar hugmyndir hvernig á að standa að því að betrumbæta og forgangsraða. Því það er ekki nóg að fá tölvurnar það þarf ýmislegt meira.
Á ráðstefnuni um Ut í skólastarfi á Akureyri sá ég ýmislegt sem var nýtt fyrir mér í UT. Mér finnst mikil gróska í þessum efnum og gaman að sjá hve margir eru farnir að nýta sér tæknina í kennslu. Einnig finnt mér spennandi öll sú samvinna sem er í gangi milli landa og hve auðvelt það er orðið að vinna saman þó svo að heilt haf sé á milli t.d. með Evrópska skolanetinu og Óðni. Ég tel að framfarinrar muni halda áfram og að við sem kennarar þurfum að vera vel vakandi til þess að nýta okkur þá kosti sem felast í UT.