Þarna eru systurnar að verða 6 mánaða og hárið farið að þynnast aðeins.
Það var hending á þessu tímabili að þær skildu ekki gubba í myndatökunni
Harpa: Gott ef ég sé ekki pelann þarna fyrir handan.
Hildur: Það var nú komin tími til við höfum ekkert fengið í 30 mínútur!!
Hildur: getur þú eitthvað hreyft þig Harpa?
Harpa: Nei mamma hefði ekki átt að setja okkur í alveg svona margar peysur
Við skulum samt reyna að brosa!
Þarna eru Harpa og Hildur með pabba sínum að búa sig undir brottför úr afmæli frá Anítu vinkonu. Þær eru 7 mánaða á þessari mynd.
Þær hafa verið brosandi frá því þær lærðu það um nokkra vikna gamlar!!
Þarna eru Harpa og Hildur ofaní körfu. Þetta var þegar þær voru ný orðnar eins árs. Þessi mynd var valin til að senda vinum og ættingjum á jólakort þessi jólin. Eru þær ekki hryllilega sætar?
Þetta er fyrsti dótakassinn hann varð fljótlega of litill!
Hildur: Geturðu fært þig aðeins ég er að kremjast.
Harpa: Þessi mamma er nú eitthvað ...að troða okkur ofaní þessa litlu körfu






