Dagblöð í skólum

Hugmyndir um kennslustundir

 

Hér er hugmynd af námslotu þar sem nemendur eru að m.a. að skoða fréttamiðla á netinu og vinna með ýmsar fréttagreinar

Markmið námslotunnar:

· Að sýna nemendum að þeir geti séð fréttir á netinu

· Að kynna ýmsa netmiðla fyrir nemendum

· Að þjálfa nemendur í lestri á mismunandi textum (auglýsingum,
fréttagreinum o.fl.).

· Að venja nemendur við að segja skipulega frá því sem þeir hafa
lesið, bæði munnlega og skriflega.

· Að nemendur temji sér gagnrýna hugsun, spyrji spurninga og leiti
svara.

· Að upplýsa nemendur um margvísleg stílbrigði sem notuð eru við ritun
netgreina .

· Að þjálfa nemendur í ritun margvíslegra dagblaðatexta.

Fyrsta kennslustund:

Kennari skrifar netföng helstu fréttamiðla á vefnum á töflu og biður nemendur að opna þá og skoða sjálfa í nokkrar mínútur.

Að því loknu eiga nemendur að finna sér frétt sem vekur áhuga þeirra. Þeir eiga að lesa hana og opna word-skjal þar eiga þeir að skrifa úrdrátt úr henni. Að því loknu eiga þeir að skoða aðra fréttamiðla og vita hvort þeir finni meira um sama atburðinn. Bera saman við fyrstu fréttina og athuga hvort einhverjar nýjar upplýsingar koma í ljós.

 

Önnur kennslustund:

Fréttablað dagsins

Nemendur eiga að útbúa fréttablað með helstu fréttum dagsins.

Kennari úthlutar nemendum efnisflokka og þeir mega vinna tveir og tveir saman. Hvert par finnur stærstu fréttina í þeirra flokk (að þeirra mati) og skrifar stutta ágrip af henni og sendir kennara í tölvupósti. Kennari tekur svo allar greinarnar saman og setur í eitt skjal og prentar út. Þar með hafa nemendur tekið saman helstu fréttir dagsins úr hverjum efnisflokk.

 

Þriðja og fjórða kennslustund

Nemendur velja sér eitthvað efni t.d. eitthvert land, dýrategund eða annað. Þeir eiga að leita upplýsinga um sitt efni á ýmsum heimasíðum og taka saman smá pistil eða fréttagrein og hafa myndir með. Kennari safnar efninu svo saman og prentar út eða setur á heimasíðu bekkjarins. Þetta verkefni má svo sníða að þeim tíma sem kennari hefur með nemendum þ.e. fer eftir tímafjölda hvert umfangið verður.

 

29.05.2003

Auður Huld Kristjánsdóttir