Aðstæður varðandi tækni!
Ég held að ég verði að byrja á því
að viðurkenna að ég tel mig ekki lifa mjög tæknilegu
lífi ef svo má að orði komast. Það er ekki lengra
síðan en eitt ár að við hjónin eignuðumst
nettengda tölvu á heimilið. Ég hef reyndar unnið
mikið á tölvur og eignaðist fyrstu tölvuna 1994 gamlan
jálk sem gerði sitt gagn þ.e. skilaði út fínum
ritgerðum og létti mér þannig lífið í
gegnum KHÍ. Það var svo í fyrra vor að við fjárfestum
í Dell fartölvu sem var 6 mánaða gömul og full að
fínum forritum. Þangað til hafði ég notað netið
og annað í vinnunni auk þess sem ég var í tíðum
heimsóknum í næstu götu hjá tengdaforeldrum
mínum. Ég held að fyrsta tölvupóstinn hafi ég
send 1995 eða 96 í KHÍ. Núna vinn ég fyrir Morgunblaðið
og DV að verkefni sem kallast Dagblöð í skólum ég
vinn það að mestu leiti í gegnum tölvuna þ.e.
tölvupóstinn og skoða nokkuð erlendar síður um
efnið. Ég fer a.m.k. einu sinni á dag inn á netið
og um klukkustund í senn. Nettengingin okkar er álíka frumstæð
og ég í tölvumálum. Þegar ég fer á
netið liggur snúra þvert yfir íbúðina og
á þann stað sem ég er að vinn á. Við
erum s.s. aðeins með einfalda símatenginu þannig að
hér er á tali mjög oft....... Þó aðstæður
séu frumlegar tel ég mig þó vera orðna nokkuð
góða í tækninni og finnst ég hafa mikið gagn
að þessu námskeiði. Um aðra heimilismeðlimi er
ekki hægt að segja að séu tæknilega sinnaðir.
Dætur mínar um 15. mánaða gamlar finnst voða sniðugt
þegar ég er í tölvunni og þá koma gjarnan
litlir fingur og ýta á takka sem á einmitt ekki að
ýta á. Húsbóndinn hefur lítið komið
nálægt tölvum en er þó allur að koma til
og er að verða fastagestur á fasteignasíðunum þar
sem við búum hér í 2 herb 60 fm íbúð
4 manna fjölskyldan og leitum að stærra húsnæði.
GSM síma eignuðumst við árið 1998 þennan fína
Nokia síma sem virkar eins og nýr ennþá. Ég
uppgötvaði þó ekki alveg strax SMS skilaboðin en er
orðin nokkuð leikin núna og nota þau töluvert. Það
sem ég nota hvað mest í starfi mínu og einkalífi
er tölvupósturinn ég sendi gjarnan vinum og ættingjum
erlendis bréf með tölvupósti og finnst ég sjá
mikla þörf fyrir að nota þennan samskiptamáta ekki
hvað síst í samskiptum við heyrnalausa mágkonu
mín sem býr í Svíþjóð. Ef ekki
hefði verið til fax, tölvupóstur eða SMS hefði hún
t.d. ekki frétt að því að systir hennar eignaðist
stúlku í dag fyrr en eftir nokkra daga. En skilaboðin komust
á leiðarenda með hraði í gegnum tölvupóst.
Þetta finnst mér frábært!!!