
![]()
| Fréttamiðlar á vefnum
eftir Auði Huld Kristjánsdóttur Kynning | Verkefni| Bjargir | Ferli | Mat | Niðurstaða
KynningTil hamingju!! Þú hefur verið ráðinn sem eftirlitsmaður hjá blaðamannafélagi Íslands. Hlutverk þitt er að skoða fréttir á heimasíðum blaðanna og hafa eftirlit með innlendum fréttum
VerkefniÞað sem þú átt að gera er að: - Velja eina innlenda frétt til að skoða - Lesa sömu fréttina á Mbl.is og dv.is - Bera þær saman - Leita frekari upplýsinga um atburðinn (fréttina) - Skrifa umsögn
BjargirVertu velkomin fyrsta daginn í vinnuna! Nú skalt þú opna Word og hafa opið nýtt skjal á meðan þú vinnur. Á vef Morgunblaðsins og DV geta nýjar fréttir birtst mjög fljótt eftir að atburður gerist. Farðu nú á þessa vefi og finndu frétt um sama atburð. Til þess að fá betri upplýsingar um staðinn sem atburðurinn gerist á getur þú farið á vef landmælinga Íslands og skoðað kort. Einnig getur þú skoðað hvernig veðrið var á vef veðurstofunnar og farið á heimasíðu viðkomandi sveitafélags ef það getur hjálpað þér að lýsa aðstæðum og varpa betra ljósi á það sem gerðist
FerliNemendur mega vinna tveir og tveir saman. Eftir að hafa lesið samskonar frétt hjá báðum blöðunum ræða þeir saman og fara yfir hvað kom fram á hvorum stað og reyna að samræma. Nota Word skjalið til þess að skrá allar upplýsingar sem komu fram. Fara svo í gegnum þær og skrifa nýja frétt þar sem allar upplýsingar koma fram. Til þess að varpa nýju ljósi á málið þarf jafnvel að skoða ýmsar aðrar síður t.d. heimasíðu viðkomandi sveitafélags.
MatVið mat á verkefnfinu verður skoðað hversu vel nemendur hafa gert grein fyrir fréttinni. Hvort þeir hafi séð eitthvað sem vantar á annan eða báða staði. Hvort þeir hafi fundið eitthvað til þess að lýsa betur aðstæðum. Einnig er metið hversu vel þeirra frétt er framsett.
NiðurstaðaNú hefur þú lokið starfi þínu þennan fyrsta dag. Þú hefur nú skoðað fréttir á vefnum. Þú hefur líka reynt að finna frekari upplýsingar um ákveðinn stað á landinu. Vonanfdi ertu einhvers vísari um hvar þú getur skoðað fréttir og hvernig þú getur fundið frekari upplýsingar um hvaðeina sem vekur áhuga þinn.
Seinast
uppfært 23.maí 2003
|