Greinar og vefsíður

Nýr vefur Sunnulækjarskóla er hér!

Forsíða
Spurt og svarað
Umræðuvefur
Skólaheimsóknir
Greinar og vefsíður
Starfsmenn
Skóladagatal
Foreldrafundur 14/6
*****
Bekkjarvefir:
1. bekkur

Sunnulækjarskóli hjá Mentor

Greinar og vefsíður um skólastarf

bullet Skólastarf á nýrri öld - Gerður G. Óskarsdóttir

Í þessari grein er gerð tilraun til að draga upp framtíðarsýn af skólastarfi
einhvern tímann á fyrstu áratugum 21. aldarinnar og m.a. fjallað um
kennsluhætti, tengsl við umhverfið, starf kennara og stjórnenda, viðmið um
inntak náms, mat á árangri nemenda og gagnaöflun um skólastarfið almennt.
 
bullet Vefur um einstaklingsmiðað nám

"Einstaklingsmiðað nám er til í ótal myndum. Meðal aðferða sem oft eru taldar stuðla að einstaklingmiðun má nefna: Samvinnunám, kennslu byggða á fjölgreindarkenningum, einstaklingsmiðað heimanám, námssamninga, efniskönnun, þemanám, þyngdarskipt efni, kennsluforrit, áhugasvæði, áhugasvið, áhugahópa, jafningjakennslu, lausnaleitarnám, samræðuaðferðir, sjálfstæð viðfangsefni, söguaðferðina, noktun fjölbreytta námsgagna, frjáls verkefni og val. "

bulletNámsaðlögun

"... má skilgreina sem viðleitni kennara til að laga námsmarkmið, kennsluaðferðir, námsefni og námsgögn ásamt skipulagi og aðferðum eins og kostur er að mismunandi getu og þörfum einstaklinga í námshópi. Með námsaðlögun er leitast við að skipuleggja nám og kennslu í bekk eða námshópi þannig að hver nemandi fái nám og kennslu við sitt hæfi innan hópsins jafnframt því sem nemendahópurinn eigi samleið sem hópur eða bekkjarheild (Allport o.fl., 1997; Damberg, 1994; Rúnar Sigþórsson o.fl. 1999). "
 

bulletSkólamenning - skólastjórn

"... Stjórnandi sem vill hafa áhrif þarf að vera opinskár um sínar skoðanir og væntingar. Hann þarf að geta talað um eigið gildismat. Aðeins þannig tekst honum að hvetja til einlægrar umræðu um norm og gildi sem eru undirstaða skólamenningarinnar. Jafnvel þó að hans sjónarmið séu fjarri því að vera algild eða algóð er jákvætt að vekja umræðu um þá þætti gildismats sem í þeim birtast. ---"
 
bulletÁhugi á umbrotatímum

"... Skólastjóri sem ætlar að viðhalda stöðugri skólaþróun í skóla sínum þarf að gera sér grein fyrir því hvaða þættir eru að verki í skólanum sem hvetja kennara til starfa.  Ekki er alltaf augljóst hvað það er sem veitir einstökum starfsmönnum starfsgleði og líklega er óráðlegt að telja að ein regla sé algild í þeim efnum.... "
 
Vefumsjón: birgirarborg.is  

15.09.2004