|
Nýr vefur Sunnulækjarskóla er hér!
|
|
|
Vinsamlega beinið spurningum til Birgis Edwald,
skólastjóra,
|
Hvað á skólinn að heita? |
Samkvæmt 31. gr. í erindisbréfi skólanefndar Árborgar ber skólanefnd að gera tillögu um nafngift skóla til bæjarstjórnar.
Málið var tekið fyrir á skólanefndarfundi þ. 9. febrúar s.l. og var eftirfarandi tillaga skólanefndar borin upp:
“Skólanefnd samþykkir að efna til samkeppni um nafngift nýja skólans í Suðurbyggð í samræmi við 31. gr. erindisbréfs nefndarinnar. Nefndin felur deildarstjóra og starfsmanni nefndarinnar að auglýsa samkeppnina.”
Hvaða börn fara í nýjan skóla í Suðurbyggð? |
Eins og fram kemur í bréfi frá deildarstjóra gunnskóla- og menningardeildar dagsettu 21. nóvember s.l. eiga börn búsett við eftirfarandi götur skólasókn í nýjan skóla í Suðurbyggð.
Háengi, Starengi, Dælengi, Miðengi, Lágengi, Suðurengi, Álftarimi, Gauksrimi, Lóurimi, Spóarimi, Erlurimi, Þrastarimi, Urðartjörn, Sílatjörn, Seftjörn, Hrauntjörn, Hólatjörn, Grundartjörn, Fífutjörn, Bakkatjörn, Aðaltjörn, Ástjörn, Baugstjörn, Álfhólar, Dverghólar, Nauthólar og Tröllhólar. Þá eiga börn búsett í hinum gamla Sandvíkurhreppi skólasókn í nýja skólann.
Margar ástæður geta legið til þess að foreldrar barna sem búsett eru á þessu svæði vilji frekar að barn þeirra haldi áfram í Vallaskóla og ljúki skólagöngu sinni þar. Einnig getur verið að foreldrar barna sem ekki eru búsett í skólahverfinu óski þess að börn þeirra hefji skólagöngu í nýja skólanum. Reynt verður að koma til móts við allar slíkar óskir.
Við undirbúningsvinnu hingað til hefur verið miðað við að öll börn sem fædd eru árin 1995 – 98 og eiga lögheimili við ofangreindar götur fari í nýjan skóla í Suðurbyggð. Nú þegar líður að vori er mikilvægt að óskir þeirra sem vilja hafa annan hátt á komi fram svo unnt sé að taka afstöðu til þeirra og miða áframhaldandi skipulagsvinnu við rétta nemendaskrá.
Þess vegna biðjum við þá foreldra og forráðamenn sem vilja sækja um skólavist fyrir barn sitt í öðrum skóla en lögheimil þess vísar til um að gera það.
Hægt er að nálgast eyðublöð vegna slíkra umsókna á skrifstofum skólanna og í afgreiðslu Ráðhúss Árborgar.
Umsóknirnar þurfa að hafa borist skólastjóra þess skóla sem óskað er eftir skólavist við eigi síðar en 22. apríl n.k.
![]()
|