Veður

Kennari : Bolette Høeg Koch

Markmið: að nemendur

  • afli upplýsinga um veður
  • mæli og skrái vindátt og úrkomu
  • fylgist með veðurlýsingu og spá í 4 vikur.
Verkefninu er skipt í 4 lotur og tekur námskeiðið 4 vikur. Nemendur eiga að leita upplýsinga á netinu og nota vef Veðurstofu Íslands
Lota 1.
Nemendur fylgist með veðri heima hjá sér á hverjum degi, skrái vindátt, hitastig og hvort það séúrkoma og ef svo er hvers konar. Nemendur finni þá veðurathugunarstöð sem er næst heimili þeirra á vef veðurstofunnar og skrái á hverjum degi vindátt, úrkomu og hitastig. Færi þetta inn í bloggið á hverjum degi. Í lok vikunar er svo gert ráð fyrir umræðum um framkvæmd og samanburður gerður á athugunum inni á webboard námskeiðsins.
Lota 2.
Nemendur lesi sér til um skýjategundir á vef veðurstofunnar og haldi áfram að athuga veðrið en bæti við að fylgjast með skýjafari bæði heima hjá sér og á nærliggjandi athuganarstöð og skrái þetta með inn í bloggið. Nemendur skoði skýringar á veðurtáknum og notaði rétt heiti yfir athuganirnar
. Í lok vikunnar eru svo umræður á webboard . Gott væri að fá hugleiðingu um hvað er erfitt og hvað gengur vel.
Lota 3.
Veðurathugunum verður haldið áfram eins og hinar vikurnar. Nemendur fylgist með veðurspá skrái niður fyrir daginn á morgun, athugi þá daginn á eftir hvort veðurspáin rætist. Prófa að spá um veðrið. Nemendur færi þetta allt inn í bloggið. Reynt verður að safna saman fróðleik um veðurspár í gamla daga, í umræðunum á webboard munum við svo skiptist á aðferðum til að spá fyrir um veður.
 

Lota 4.

Í siðustu vikunni eiga nemendur að taka saman þær upplýsingar sem þeir hafa aflað sér og reikna út meðal hiti á tímabilinu, hvaða vindátt var mest ríkjandi, hlutfall skýja hulu, fjölda úrkomudaga.
Skrá það allt saman inn í bloggið. Inn á webboard eiga nemendur að segja frá hve sannspáir þeir voru með veðrið og einnig hvernig námsloturnnar gengu.

 

Mat:

Metið verður

  • hversu virkir nemendur eru að skila inn upplýsingum á blogginu
  • hversu skýrt efnið er sett fram
  • hversu vel vefheimildir eu notaðar
  • hversu virkir nemendur eru á webboard námskeiðsins
 

 

til baka

© 2003 - Bolette Høeg Koch