Tæknisaga mín

 

Þó að ég hafi ekki komið frá sérlega tæknivæddu heimili má segja að ég nýti mér tæknina mikið í dag. Ég eignaðist fyrstu tölvuna mína árið 1991, það var Makki sem átti eftir að nýtast mér í tæpan áratug. Ég byrjaði mín netsamskipti í gegnum Imbu og fór á nokkur námskeið hjá íslenska menntanetinu. Í dag á ég PC vél sem nýtist mér mikið bæði í starfi og námi. Einnig er til fartölva á heimilinu en hún er aðallega notuð af elstu dóttur minni sem er ný byrjuð að stunda nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Við búum í stóru húsi, þannig að við lögðum inn síma á þremur hæðum, við höfum faxtæki á skrifstofunni, það hefur gagnast okkur mikið og sparað margar bílferðir. Við höfum líka lagt síma í fjósið, og erum að bíða eftir að setja tölvu þangað og vonandi eftirlitskefi áður en langt líður.

Við erum 6 manna fjölskylda og við eigum 4 gemsa, það er sá eldsti (tengdapabbi minn 90 ára) og sá yngsti (Jóhanna dóttir mín 11 ára) sem ekki eiga síma. Ég man nú ekki nákvæmlega dagsetningu af fyrstu innkaupunum, Ég held að það séu svona 8 ár síðan.. Ég keypti síma út í Danmörku þar sem gsm símar voru ekki eins algengir hér á landi eins og nú. Við notum gemsana mikið. Það getur verði erfitt að ná manninum mínum í síma þannig að það létti mikið að fá gemsa handa honum. Stóru stelpurnar mínar eru út og suður eins og gengur og gerist með ungt fólk. Mér finnst mjög gott að geta náð í þær í síma. Ég nota sms mest milli mín og barnanna minna og líka til systur minnar. Mér finnst það ágætt, það truflar minna og er fljótlegra en að hringja.

Við eigum 3 sjónvörp, þannig geta allir séð það sem þeir vilja. Það er til videiotæki sem tengt er öllum sjónvörpunum. DVD er bara í tölvunum.

Starfræna myndavél á ég ekki, en ég hef aðgang að einni slíkri í skólanum. Hinsvegar á ég videioupptökuvél og nota hana heilmikið. Ég er búin að eiga hana lengi og ég á börnin mín lítil á spólu.


Við notum þráðlausa tölvu til stýringar á fóður kerfinu í fjósinu. Það er til stór þæginda.

til baka

© 2003 - Bolette Høeg Koch