Verkefni í Námi og kennslu á netinu í Kennaraháskólanum 2003
Bolette Høeg Koch - bhk@ismennt.is
Vefleiðangur um landbúnað fyrir 7.bekk.
Íslenskur landbúnaður



|
Þú hefur fengið vinnu á auglýsingaskrifstofu. Þú átt að búa til bækling um íslenskan landbúnað. Þú átt að reyna að hafa bæklinginn sem skemmtilegastan til að vekja áhuga fólks á landbúnaði. Bæklingurinn verður hluti af kynningarefni á sýningu skólans um landbúnað.
|
|
Þú átt að semja stuttan texta um íslenskan landbúnað. Þú átt að taka ljósmyndir eða teikna. Bæklingurinn á að vera unninn í forritunu Microsoft Publisher á einu A4 blaði báðu megin. Í textanum á að koma fram umfjöllun um
|
|
Bjargir Hér eru krækjur sem þú getur notað til þess að safna upplýsingum. Búnaðarfélag Íslands Hér finnur þú upplýsingar um ræktun dýra ásamt því nýjasta sem er að gerast í landbúnaðarheiminum. Búnaðarsamband
Suðurlands Búnaðarsamband Vesturlands Hér eru upplýsingar um ræktun dýra og um starfsemi á Vesturlandi. Eiðfaxi Eiðfaxi er tímarit sem flytur fréttir og fróðleik af hestum og hestamönnum. Húsdýragarðurinn Hér er hægt að finna upplýsingar og myndir af helstu húsdýrum. Landbúnaður.is Þetta er sameiginlegt vefsvæði landbúnaðarstofnanna. Hér finnurðu tengla í flestar landbúnaðarstofnanir á Íslandi. Landsamband kúabænda Upplýsingar um kúabændur. Hér getur þú fundið mataruppskriftir með nautakjöti. Loðdýrabændur.Þetta er danskur vefur um allt sem við kemur loðdýrum, það er um ræktun, uppeldi, skinn og tísku. Miklaholtshellisbúið Hér er að finna upplýsingar um eggjaframleiðslu, uppskriftir og föndur Mjólkurbú Flóamanna Þú getur fundið upplýsingar um mjólkurafurðir og vinnslu þeirra hér auk sögu Mjólkurbúsins. Samband garðyrkjubænda Hér er að finna upplýsingar um garðyrkjubændur. Hér finnur þú myndir og uppskriftir með grænmeti. Sláturfélag Suðurlands Fréttir af helstu kjötvörum flokkaðar eftir tegundum (lamba-, naut-, svína-, hrossakjöt ofl.) Svínaræktarfélag
Íslands Hér eru uppskriftir og upplýsingar
um meðferð svínakjöts. Bækur sem hægt er að finna upplýsingar í: Matarást - Alfræðibók um mat og matargerð skrifuð af Nönnu Rögnvaldardóttur. Hér eru fínar myndir af grænmeti og skýringar með. Húsdýrin okkar eftir Stefán Aðalsteinsson og Kristján Inga Einarsson. |
|
|
Nú átt þú að hafa lært ýmislegt um landbúnað og kynnt þér ýmsar afurðir. Í lokin skaltu velta fyrir þér kosti og galla landbúnaðar á Íslandi. Ættum við frekar að flytja allar landbúnaðarvörur inn og hætta framleiðslu í landinu? Eða ættum við að efla framleiðslu landbúnaðarvara og gefa fleirum kost á að nýta landið okkar? Það
hafa margar kynslóðir unnið við landbúnað
allt síðan frá landnámi Íslands. Garðyrkjuskóli ríkisins Hér er að finna upplýsingar um skólann, tilraunir sem hafa verið framkvæmdar þar og greinasafn. Hvanneyri Hér eru upplýsingar um starfsemi landbúnaðarháskólans. Þú getur fundið krækjur á ýmsar búvélar á þessari síðu. HólarHér finnur þú meðal annars upplýsingar um fiskeldisbraut og hrossabraut skólans. Rannsóknarstofnun landbúnaðarins Hér getur þú fundið upplýsingar um hin ýmsu svið landbúnaðarins s.s.búrekstrarsvið, fóðursvið, plöntueftirlit o.s.frv.
© 2003 - Bolette Høeg Koch |