Mörgum
þykja flatbökur góður matur. Sérstaklega
fólki af yngri kynslóðinni. Eldra fólk
vill frekar lambalæri eða ýsu, nú eða
þá slátur og svið, heldur en það
sem það kallar gúmmílummur.
Ljóst
er þó að þeim fer fjölgandi sem kjósa
sér flatbökuna sem næringu og þeim fækkandi
sem segja að gúmmílummurnar séu ekki
matur. Þetta er nú einu sinni gangur lífsins.
Dýrt
er að kaupa endalaust flatbökur á þar til
gerðum veitingahúsum og því vel þess
virði að geta gert þetta á eigin spýtur
heima. Heimatilbúin flatbaka þarf alls ekki að
vera verri en sú aðkeypta. Þvert á móti!