...Áhugamál...

Helstu áhugamál mín fyrir utan skólamál og upplýsingatækni, eru tónlist, jóga og útivist. Svo er alltaf gaman að skreppa heim í sveitina mína, en það gerum við eins oft og við getum.

Á myndinni sést Bjarg, hús afa míns og ömmu, en þar átti ég heima fyrstu æviárin. Fjölskylda mín hefur rekið ferðaþjónustu við Mývatn í allmörg ár og eins og sést, þá eru þau með tjaldsvæði á túninu og bátaleigu, ásamt skoðunarferðum og gistingu í heimahúsum. Ræðarinn knái á myndinni er „litli” bróðir minn, Illugi Már.

Útrás fyrir tónlistaráhugann fæ ég með því að syngja í Kirkjukór Seyðisfjarðarkirkju. Það er mjög skemmtilegt, en getur verið krefjandi þar sem við erum yfirleitt ekki mörg.

Árið 1999 fórum við í tónleikaferðalag til Englands. Það var ógleymanleg ferð og mjög vel heppnuð. Nú erum við byrjuð að undirbúa næstu utanlandsferð og stefnan hefur verið tekin á Svíþjóð og Finnland.

Seyðisfjarðarkirkja er kölluð „Bláa kirkjan” af augljósum ástæðum.

Tvisvar til þrisvar í viku fer ég í jógatíma og finnst mér það eiginlega alveg ómissandi. Ávinningurinn er bæði líkamlegur og andlegur og get ég svo sannarlega mælt með jóga fyrir hvern sem er.

Útivistaráhuginn felur í sér þörf fyrir nálægð við náttúruna og kemur einkum fram í áhuga á gönguferðum, bæði styttri og lengri.

Fjölmörg önnur áhugamál hafa komið og farið og oftast hef ég mestan áhuga á því sem ég er að fást við hverju sinni. Akkúrat núna er það vefsíðugerð!