...Um mig...

Ég er fædd og uppalin í Mývatnssveit, en hef búið á Seyðisfirði síðan haustið 1989. Hingað kom ég ásamt dóttur minni, nýútskrifuð úr KHÍ, fór að kenna, eignaðist mann og annað barn og hef bara kunnað ljómandi vel við mig síðan, takk.

Þessi mynd var tekin sumarið 2002 í göngu á milli Seyðisfjarðar og Loðmundarfjarðar. Það eru eiginmaðurinn og sonurinn sem eru fyrirsæturnar.

Maðurinn minn heitir Jóhann Stefánsson, hann er vélvirki og starfar hjá bræðslunni á staðnum. Við eigum saman soninn Stefán, sem fæddist árið 1992.

Á þessari mynd erum við stödd í lystigarðinum Skrúð í Dýrafirði, sumarið 2001.

Dóttir mín, Sandra Hrafnhildur Harðardóttir, er fædd 1985. Hún er búin með 2 ár í Menntaskólanum á Egilsstöðum, en stefnir á að fara í nám fyrir sunnan í haust. Hún er sú sem heldur á ungabarninu á myndinni.

Annars er þessi mynd tekin á sjómannadaginn 2001 og á henni erum við mæðgurnar ásamt Ástu mágkonu minni með 3 börnum hennar og Þórarins Pálma, bróður míns.


Aftari röð frá vinstri: Ásta, Sandra, Helgi James
og ég. Fremri röð: Pálmi John og Inga Freyja.