|
Kennsluvefur Heimilisfræðival - framhaldsskóli eftir Bryndísi Símonardóttur
Kransakökugerð Kynning - Efni og áhöld - uppskrift- Aðferð- Niðurstaða og bjargir
Kynning: Kransakökugerð hefur orðið mjög vinsæl á síðustu árum. Eru þær hafðar á veisluborðum við hátíðleg tækifæri eins og við fermingar, skírnir, giftingar, stúdentaveislur og algengt er að þær séu á veisluborðum í stórafmælum. Uppistaðan í þeim er svo kallaður möndlumassi, en hann samanstendur af hökkuðum möndlum, eggjahvítum og sykri (marsípan). Í dag er hægt að kaupa möndlumassann tilbúinn í bakaríum og stórmörkuðum. Það auðveldar kransakökugerðina til muna og er hann yfirleitt mjög góður og sparar vinnu og gerir kökugerðina auðveldari. Í uppskriftinni sem ég læt fylgja verkefninu er gert ráð fyrir tilbúnum massa, en bæta þarf í hann eggjahvítum og sykri. Búnir eru til hringir og algengast er að hafa kökurnar eins og keila í laginu. Einnig er hægt að búa til köku eins og körfu í laginu og fylla hana af góðgæti eða litlum kransakökum sem hafa verið skreyttar með rauðu kokteilberjum og súkkulaði, einnig er hægt að búa til þannig horn. Gaman er að nota hugmyndaflugið og gera það sem mann langa helst til.
Efni og áhöld: Það sem við þurfum í kökuna sem við ætlum að gera er möndlumassi tilbúinn. Eggjahvítur, sykur, flórsykur, hrísmjöl og jurtafeiti í úðabrúsa og skraut t.d konfekt, styttur, blóm, og bakka sem kakan á að vera á. Formin sem við notum eru sér útbúin kransakökumót með átján misstórum hringjum. Einnig þurfið þið rjómasprautu með mjög mjórri sprautu eða efni til að búa til kramarhús. Uppskrift: Kakan 1.200 gr marsipanmassi
Glassúr á kökuna: 220 gr flórsykur
Aðferð: Eggjahvítur og sykur er þeytt saman (ekki eins mikið og marens) þannig að það þykkni aðeins. Síðan er þessu hnoðað saman við marsípanið. Smyrjið formin vel og stráið hrísmjöli í formin. Ef ykkur finnst massinn vera of blautur þá er gott að hnoða dálitlu hveiti upp í hann. Bakað í blástursofni við 130°C. Bakað ljóst í ofninum, og látið kólna í mótinu. Kökurnar eiga að vera seigar og mjúkar. Glassúrinn er búinn til og sprautaðar eru grannar samhangandi línur í krákustígum þversum yfir hringina, fyrst á stærsta hringinn síðan er næsti hringur festur á, áður en bráðin þornar. Þannig er þetta gert koll af kolli. Þessi kaka sem þið eruð að búa til á að vera eins og keila í laginu. Síðan er sykur bræddur og konfekt og skraut fest með honum á tertuna.
Vefir sem sýna myndir af kransakökum Sveins
bakaí
|