Verkefni í hönnun, teikningu og líkanagerð
Að leysa þarfir með rými
 
Lokaskilatími: 8. nóvember
 
Hönnun mannvirkis - líkanagerð
Verkefnið er að fá hugmynd að húsnæði sem leysir þarfir tiltekinnar fjölskyldu sem nemandinn velur sér og eftir að hafa gert þarfagreiningu á henni kemst hann niður á hugmynd að íverustað fyrir fjölskylduna og finnur stað í raunumhvefi sínu fyrir hana.
Staðurinn er ekki bundinn við skipulagt hverfi. Þetta getur þess vegna verið úti í sjó eða niðri í jörðinni. Svo þarf að skitsa nokkrar hugmyndir að skipulagi sem byggir á flæðiriti sem gerir grein fyrir hvernig þarfirnar tengjast í rýminu. En þar sem þið eruð í raun að gera er að leysa þarfir með rými. Til að átta sig á þessum þáttum er einnig gott að skoða mannvirki sem hafa samfélagslegt gildi eins og kirkjur, verlanir og þjónustumiðstöðvar t.d. fyrir aldraða. Og líka að kíkja á staðhætti og sjá út lóð sem hentar
Að lokum gerið þið líkan í frjálsu hlutfalli úr efni sem þið finnið til en það er frjálst. Ég mæli með mdf listum krossviði og spýtukubbum. Setjið svo eitthvað af húsgögnum inn í rýmin úr litlum kubbum.
Verkefnið tilheyrir flokknum "högun-mannvirki" sem er í raun heiti yfir arkitektúr.
 
Nokkrar vefslóðir er tengjast verkefninu
Nokkrar slóðir að vefsíðum er fjalla um arkitektúr sem gaman er að skoða . Einnig finnst fjöldi teikni- og hönnunarforrita sem gaman er að hagnýta í svona verkefni. Þá er á sama tíma verið að hagnýta upplýsingatæknina í skólastarfi sem er þverfagleg áhersla.
 
http://www.menning.is/byggingarlist.html
http://www.plannet.com/resources.html
http://www.loggia.com/vignette/
http://www.ai.is/almsamk.html
http://www.centrum.is/isark/1.htm
http://www.onno.is/

 

Eðli verkefnisins
Er megináhersla á hönnun mannvirkja með tilliti til félagslegra þarfa og nýtingu á rými og umhverfi. Nemendur setja fram lausnir með tilheyrandi teikningum og líkönum og bera saman þarfir síns litla heims, smáheimsins og þarfir stórheimsins, okkar heims sem er manngert umhverfi.
Hér er eðlilegt að beina sjónum að hinni siðferðislegu hlið á framtaki mannsins, Hér lærir nemandinn um það hvernig arkitektar hugsa, t.d. þarfir skilgreindar í rými og virkni rýmisins, og spáð í tengingu mannvirkja og umhverfis út frá félagslegum forsendum.
 
Hagnýting
Verkefnið er gott verkefni til að leggja fyrir bekk í grunnskóla t.d. 11 &endash; 15 ára og gefa því nokkrar vikur að þróast eða taka á nokkrum dögum t.d. sem þátt í þemaviku.
Segja má að hér sé um að ræða samþættinu smíða og margra annarra greina eins og myndmennt, samfélagsfræði og móðurmáls. Verkefnið samræmist hugmyndum er koma fram í nýrri námskrá fyrir "Hönnun og smíði".
Hér er markmið kennslunnar að efla skilnings nemandans á umhverfi sínu og þátt mannsins í mótun þess. Á sama tíma erum við að sýna fram á getu nemandans til þátttöku í mótun umhverfis síns. Þannig væri t.d. hægt að leggja fyrir vandamál sem væri til staðar í nánasta samfélagi nemandans. Eins og t.d. virkjun og stóriðja á Ausfjörðum osfrv, þar sem er spáð í áhrifin á samfélagið, menninguna og náttúruna.
 
Til umhugsunar
… áhrif og samspil manngerðs umhverfis, náttúrulegs og menningarlegs
… einka, hálfeinka og opinbert
… samspil mismunandi rýma
… birta og áhrif hennar á líðan okkar
… sérþarfir
… mikilvægi heildarhugsunar
 
Meginverkefnaferillinn
1. Grunnhugmyndir skoðaðar af lýsingum á fjölskyldum
2. Greina þarfir fjölskyldnanna
3 .Gera flæðirit yfir þarfir í rými þar sem athugaðar eru almennar þarfir og sérþarfir út frá   fólkinu
4. Finna lóðina, velja umhverfi og skilgreina. Hér er ágætt að nota jósmynd úr eigin umhverfi eða úr   gömlu tímariti.
5. Fá hugmynd að húsnæði fyrir viðkomandi fjölskyldu (Ákveða konsept mannvirkisins)
6. Fá meginhugmynd að útfærslu mannvirkis. Bak við öll mannvirki sem mæta   raunverulegri þörf er grunnhugmynd
7. Spá í hjartað í mannvirkinu, hvernig á fólkinu að líða þar, verður eitthvað sem hefur áhrif á    hjartað í mannvirkinu, sem tengist t.d. birtu, efnisvali, áferðum, skipulagi rýmisins eða hvernig    það virkar og birtan,
8. Skissa einfaldar myndir af hugsanlegum útfærslum
9. Réttvarpa mynd A4 útlit , Gera útlitsteikningu
10. Lýsandi mynd er sýnir hús í umhverfi sínu A4 útlit
11. Gera grunnmynd A4 , ekki í nákvæmum mælikvarða (ca:1:20)
12. Gera lítið líkan sem byggir á grunnmynd söguð út t.d. úr mdf veggir eru reistir t.d. úr pappa    eða krossviði eða mdf og þak reist úr listum þannig að sjáist inn. Milliveggis settir og hurðaop
13. Spá í útlit og efnið og áferðir, sjá það fyrir sér
14. Síðan er púslað inn nokkrum einföldum húsgögnum t.d. úr furukubbum sem gefa hugmynd    um fólk sem þarna byggi og t.d. hægt að staðsetja fígúru inn í eins og pleymó.
   Einnig er hægt að nota steina eða annað efni úr náttúrunni.
 
 
Skila
a) Stuttri greinargerð 1,5 til 2 bls., þar sem eftirtalin atriði koma fram
1. Heiti verkefnis
2. Lýsing á fjölskyldunni sem var valin
3. Þarfagreining á fjölskyldunni
4. Lýsing á lausninni, hugmynd ykkar og hagkvæmni hennar og hvernig hún mætir þörfum   fjölskyldunnar, útskýra.
5. Lýsing á lóðinni og áhrifum hennar á mótun hugmyndarinnar. Eru t.d. einhverjir   árekstrar við umhverfið og hvernir eru þeir leystir.
 
b) Teikningum útlitsteikningu í raunumhverfi (má setja inn á tölvu)
1. Hugmyndaskitsum og eftil vill ljósmynd eða teikning af lóð sem gæti verið úr blaði eða   bók.
2. Grunnmynd af húsnæði
3. Lýsandi þrívíddarmynd
c) Litlu líkani stærð í raun frjáls
 
Til hughreystingar
Hér er í raun um að ræða einfalda framkvæmt á verkefni sem gefur ótal möguleika og þið getið unnið út frá ykkar eigin umhverfi. Athugið að auðvelt er að fara út fyrir velsæmismörkin þannig að ég ráðlegg ykkur að halda ykkur við ferilinn og gera honum góðs skið, vanda alla framsetningu.
Hugsið á meðan þið eruð að gera verkefnið hvernig þið mynduð vinna með svona verkefni í grunnskólanum. Ég er búinn að leggja það einu sinni fyrir 12 ára, bæði sjálfur og með öðrum kennara og kom vel út. En kennarinn þeirra hefði reyndar mátt kunna svolítið í smíði til að átta sig á hagkvæmustu efnistegundunum.