Fjölskyldur sem bíða eftir sérhönnuðum íverustað
 
Veldu eitt af tíu dæmum um íbúa og hannaðu íverustað fyrir þá. Þú gætir lokið við að segja sögu íbúanna og skilgreina líf þeirra.
 
1. Sextug kona með hund. Áhugamál eru brids og blómarækt. Heldur oft teboð fyrir vini sína og ræðir kvennréttindamál.
 
2. Pönkari sem spilar í hljómsveit, býr einn , en á fimm kærustur. Áhugamál eru mótorhjól, á þrjú stykki og heldur oft veislur (partí). Reykir hass.
 
3. Tvær samkynhneygðar konur sem hafa ættleitt tvö börn frá Kóreu. Sérstök áhugamál þeirra eru búddatrú og skíðaíþróttir.
 
4. Hjón með tvö börn. Maðurinn er sjómaður og konan dagmamma. Börnin eru 12 sonur og 17 ára dóttir sem á sér kærasta. Hjá hjónunum býr einn afi í hjólastól. Helstu áhugamál afans eru útskurður og trérennismíði sem heimilisfaðirinn grípur líka í þegar hann er í landi.
 
5. Sjötug hjón, ellilífeyrisþegar, með fjórar hænur og einn hana. Áhugamál þeirra er trjárækt og náttúruskoðun
 
6. Einhleypur sjómaður á frystitogara sem á sér engin áhugamál utan við vinnuna. Ekur um á stórum upphækkuðum jeppa.
 
7. Kommúna þrjár konur og tveir karlar og þrú börn sem búa saman í kommúnu og stunda ýmis konar handverk. Ein af konunum er hölt á öðrum fæti og notast við staf.
 
8. Fimmtugur kvikmyndagerðargerðarmaður sem býr með 18 ára konu. Maðurinn á þrjú börn með sitt hvorri konunni og er alkohólisti. Aðaláhugamál fyrir utan vinnuna blómarækt og sjóstangveiði, enda á hann litla gamla trillu.
 
9. Einstæð kona með þrjá litla krakka 2 ára, 5 ára og 7 ára. Krakkarnir mikið einir heima, því konan verður að vinna langan vinnudag til að brauðfæða fjölskylduna. En hana dreymir um að komast í tölvuháskólann. Mikið horft á sjónvarp og spilað í nítendótölvu.
 
10. Alþingismaður um sextugt og konan hans með einn kött. Sérstök áhugamál bókalestur, frímerkjasöfnun og sólarlandaferðir.