Heimasíđa FKM

Stjórn

Félagatal

Lög félagsins

tengiliđir skóla

Skólar

Stofnanir

Upphafssíđa



 

LÖG FÉLAGSINS

Félagsreglur

1. grein Félagiđ heitir Félag kennara í málmiđnagreinum. Ađsetur ţess er í Reykjavík.

2. grein Tilgangur félagsins er ađ efla samstarf og samvinnu kennara í málmiđnagreinum t.d. međ umrćđufundum, útgáfustarfsemi, námskeiđum o.fl. Taka ţátt í skipan kennslu- og skólastarfsemi í málmiđnagreinum og hafa áhrif á menntun kennara. Hafa samband viđ tilsvarandi félög kennara erlendis og koma fram fyrir hönd málmiđnakennara á erlendum vettvangi.

3. grein Félagar geta orđiđ ţeir sem kenna verklegar og/eđa bóklegar greinar málmiđna í framhaldsskólum og sérskólum. Stjórn félagsins getur ef ástćđa ţykir til veitt öđrum en áđurnefndum kennurum ađild ađ félaginu.

4. grein Stjórn félagsins skipa 5 menn kosnir til tveggja ára í senn. Skulu 2 kosnir annađ hvert ár en 3 hitt áriđ, ţar af einn formađur sem kosinn er sérstaklega. Stjórnarmenn skipta međ sér verkum. Ţá skulu kosnir árlega tveir varamenn í stjórn, skulu ţeir sitja stjórnarfundi međ málfrelsi og tillögurétti. Einnig skulu kosnir 2 endurskođendur til eins árs í senn.

5. grein Ađalfund skal halda ár hvert og skal hann bođađur bréflega međ dagskrá í ţeim skólum ţar sem félagsmenn starfa međ a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Ađalfundur er löglegur ef löglega er til hans bođađ. Á dagskrá eru m.a. öll venjuleg ađalfundarstörf.

6. grein Félagsgjald skal ákveđiđ á ađalfundi.

7. grein Reglum félagsins er ađeins hćgt ađ breyta á ađalfundi. Tillögur um breytingar á reglum félagsins skulu koma fram í fundarbođi ađalfundar. Breytingar skođast samţykktar ef ţćr hljóta einfaldan meirihluta greiddra atkćđa.

8. grein Verđi félagiđ lagt niđur ganga eignir ţess til Bandalags kennarafélaga.