Einar Jónsson-einarjo@ismennt.is - 2007
Efnafræði

 

Húsráð og snyrtiefni

-verkefni í hagnýtri efnafræði

 

 

 

 

Hvers vegna!


Gömul og ný húsráð eru e.t.v. vannýtt auðlind!

Fólk er oft að finna upp ,með prófunum og reynslu, ráð til að leysa hversdagsleg vandamál s.s. til að þrífa bletti úr fötum og teppum, hreinsa silfur eða eyða óæskilegri lykt. Einnig má nefna andlitsmaska úr möluðum adukibaunum. Flest eiga þessi ráð eða aðferðir það sameiginlegt að vera bæði ódýr og umhverfisvæn.

efst á síğu

 

Verkefni - lýsing

 

Nú ætlum við að endurvekja nokkrar svona aðferðir.

Þið spyrjið foreldra ykkar eða afa og ömmu hvort þau kunni ekki einhverjar snjallar aðferðir sem aðrir geta nýtt sér. Þetta getur t.d. falist í að nota matarsóta til ýmissa verka eða edik. Þetta geta einnig verið snyrtivörur úr náttúrulegum efnum.

efst á síğu

 

Bjargir


Bækur

Traustustu heimildirnar eru bækur og því er tilvalið að fara á Skólasafnið og kanna hvort eitthvað er til sem nýtist í verkefninu. Þetta gætu t.d. verið bækur um þjóðháttafræði og náttúrulækningar.


Netið

Ef þig vantar myndir í verkefnið þá er google vefurinn góður. Á netinu er vefur Bandalags íslenskra græðara. og hann ætti að koma að góðum notum.

Annað
hvar.is Rafræn gagnasöfn

Vísindavefur Háskólans. Þar er að finna svör við mörgum spurningum.

Efst á síğu

Ferli

 

Verkefnið felst í eftirfarandi:

  • Tala við foreldra eða afa og ömmu eins og fyrr segir.
  • Leita á netinu að upplýsingum um húsráðin.
  • Senda kennara hugmynd að verkefni - einarjo@langholtsskoli.is. Mundu að þetta verður að vera ódýrt og umhverfisvænt.
  • Finna félaga til að vinna með í verkefninu (ef þú ert ekki þegar búin/n að því).
  • Prófa aðferðina - virkaði hún? Eða kanna heimildir um aðferðina ef það á við.
  • Gera vandað kynningarefni um aðferðina. Það þarf að velja viðeigandi miðil, s.s. myndaröð, bækling, "poster" eða annað sem hæfir. Munið að hafa þetta einfalt og skýrt.
  • Kynna þetta fyrir samnemendum og foreldrum ef tækifæri gefst.

Þetta verkefni verður unnið samhliða öðru námi í efnafræði. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og að verkefnið sé raunhæft.

 

Efst á síğu

 

Mat


Námsmat samkvæmt gátlista sem nemendur og kennari fylla út í sameiningu.

Efst á síğu

Niğurstağa


Eftir að hafa unnið þetta verkefni hefur þú öðlast mikla þekkingu á einu efni og hvernig hægt er að nýta það. Einnig hefur þú kynnst því að margs konar efni eru hluti af daglegu lífi okkar.

Efst á síğu

Gert april 2006. Uppfært síðast í sept. 2007.
Salvör Gissurardóttir şıddi şetta sniğ frá The Webquest Page.