UPP MEÐ ÁNNI

Úr sýningarskrá;
Viðfangsefni mitt á þessari sýningu er ferðalag upp með ánni. Ég mála nokkur myndbrot úr ferðinni. Áin tekur á sig breytilegar myndir. Hún er bæði heit og köld eins og grjótið.
Myndirnar lýsa ekki landinu eins og það er á ákveðnum stöðum, en oft má sjá fyrirmyndirnar sem ég hef valið við tjáninguna. Ég hef ferðast mikið um landið og safnað upplýsingum í hugann. Það notfæri ég mér  síðan við myndsköpunina. Áhugi minn á myndlíkingum og persónugervingu landslagsins hefur einnig áhrif á myndsköpun mína. Stóru landslagsmyndirnar gefa mér meira frelsi í tjáningunni og ég tengist viðfangsefninu á annan hátt. ÉG verð eins og hluti af verkinu á meðan á vinnunni stendur.
Það er ekki hægt að misskilja verkin mín, aðeins að upplifa þau á annan hátt en ég geri.

ELIN G.  | JAKAR | UPP MEÐ ÁNNI | SPRÆNUR | GJÓTUFÓLKIÐ
| GJÁR