Inngangur

Grunnskólinn í Borgarnesi er grunnskóli fyrir nemendur í 1. – 10. bekk. Í skólanum eru 328 nemendur, skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, 40 kennarar og 16 aðrir starfsmenn.

Í áfangangum Þróunarstarf og mat áttum við að gera úttekt á þróunarverkefni. Þar sem við höfum mikinn áhuga á námsmati ákváðum við að skoða þróunarverkefni frá Grunnskólanum í Borgarnesi. Verkefni heitir "Frá námskrá til námsmats". Við byrjuðum á að lesa lokaskýrslu um þróunarverkefnið og tókum síðan viðtal við tvo kennara í skólanum, einn af stjórnendum verkefnisins og annan sem tók þátt (í úttektinni köllum við þá viðmælanda 1 og viðmælanda 2).

Í þessu verkefni berum við þróunarverkefnið saman við þríþætt breytingarlíkan Fullans. Hann talar um að breytingar eigi sér stað í þremur fösum: Kveikju, innleiðingu og festingu (Fullan 2001:50).

Mynd á síðu tók Þór Jóhannsson, Grunnskólanum í Borgarnesi
© Eygló Friðriksdóttir og Hrund Gautadóttir
Uppfært 8-feb-04