Fjarnám - góð ráð
Eyjólfur Sturlaugsson 2001
cc
Góð ráð



 

Góð ráð

Borðaðu reglulega og hollt fæði ! Það að læra klukkustundum saman á fastandi maga eða með ruslfæði til að seðja hungrið, er tímasóun. Þú nýtir tíma þinn mun betur ef þú heldur þig við hollan mat og reglulegar matarvenjur.

Forðastu örvandi efni ! Slepptu að drekka koffeindrykki, eða orkudrykki fyrir eða á meðan á námi stendur. Best er að sleppa slíkum drykkjum með öllu.

Gaktu ekki á svefntíma ! Að fara seint að sofa og að læra á svefntíma getur haft alvarlegar afleiðingar til lengdar. Svefnleysi hefur áhrif á allar gjörðir þínar, í vinnunni, náminu og einkalífinu. Skertur svefn getur komið á laggirnar vítahring þreytu, streytu og kvíða með líkamlegum einkennum eins og höfuðverk, vöðvabólgu og magaverk. Bjóddu aldrei vinnufélögum, nemendum þínum, börnum þínum né maka þínum upp á illa fyrirkallaðan, trektan, skapvondan og tímalausan fjarnema.

Leitaðu hjálpar ! Notað þá hjálparmöguleika sem boðið er upp á í námsáfanganum. Leitaðu til einstakra námsfélaga eða hópsins alls með vandamál. Leitaðu til lækna ef streyta verður langvarandi.

Hreyfðu þig daglega ! Vegna þess að fjarámi er oft bætt ofan á aðrar skyldur verður sá tími sem notaður var til heyfingar oft útundan. Öllum er hollt að hreyfa sig og er það misjafnt eftir fólki hvernig hreyfingu það vill stunda. Sund og göngur eru heppilegar vegna þess hversu auðvelt er að stunda þá hreyfingu með fjölskyldumeðlimum og þannig slá tvær flugur í einu höggi; gera eitthvað með fjölskyldunni og hreyfa sig.