|
Tímaþjófar
Þar sem fjarneminn tekur sjálfur ábyrgð á
sínum tíma er auðvelt að misnota hann. Oftar en
einu sinni hefur komið fram að við fjarnám skiptir
tímaskipulag miklu máli, er rétt að líta
á nokkra tímaþjófa.
Frjáls umræða. Slík
umræða, sem ekki tengist náminu, en fer fram í
tölvum er nauðsynleg; skapar kynni og skemmtun. En hún
getur orðið allmikil og tímafrek. Finndu þinn meðalveg
hér.
Tölvupóstur/korkar og spjallrásir.
Samskiptin fara mest fram með þessum hætti og eru fremur
tímafrek sökum þess að þau fara fram í
rituðu máli. Aðalmálið er að vera ekki á
eftir öllu né öllum. Það er óþarfi
að svara öllum bréfum á sameiginlegum svæðum
og vera að eltast við allt sem inn kemur.
Netið. Að sækja einfaldar
upplýsingar á Internetið getur tekið langan tíma
ef maður kann ekki á leitarvélar. Þá er
mikið af skemmtilegu og fróðlegu efni sem hægt er
að gleyma sér í tíma og ótíma.
Sumir hafa ósjálfráðar venjur þegar þeir
fara á Internetið t.d að skoða póstinn, fréttir
á mbl.is, skoða veður,sjónvarpsdagskrá og
einhverjar uppáhaldssíður. Þetta er stundum gert
oft á dag. Athugaðu hvað þú eyðir miklum
tíma bara í slíkar venjur á netinu.
Fókus á tæknina.
Algengt er að verða tækniglaðir við tölvuvætt
fjarnám. Miklum tíma er þá varið í
að skoða tæknimöguleika eða setja upp nýjan
vél- eða hugbúnað á tölvuna.
Tæknilegir erfiðleikar.
Ef þú siglir í strand og getur ekki bjargað þér
í tæknimálum, skaltu ekki eyða miklum tíma
í að reyna að bjarga þér sjálfur, nema
þú hreinlega hafir mjög mikinn tíma. Fyrsta úrræði
eftir frumtilraun til þess að bæta vandann er að leita
aðstoðar.
|
|