|
Umhverfið
Þegar þú hefur tekið ákvörðun
um að fara í fjarnám og hefur fengið inni í
þeim námsáfanga sem þú ætlar þér
skaltu strax byrja að skipuleggja þitt eigið námsumhverfi.
Farðu yfir tæknimálin !
Athugaðu hvort þú sért með allan þann
tölvubúnað sem krafist er í námsáfanganum.
Sæktu þér skýrsluform og útfylltu það.
Reyndu að gera þér grein fyrir veikum hliðum og
sterkum. Settu og niður nokkur orð um hver næstu skref
þín í tæknimálum verða næstu
misserin.
Mótaðu tölvun !
Best er hafa til umráða eigin tölvu. Að deila tölvunni
með einum eða fleiri getur skapað vandamál. Þetta
fer þó eftir því hversu mikið námið
er og tímafrekt. Gerðu tölvuna persónulega með
því að skipuleggja gagnaskrár eftir þínu
höfði, sæktu skjámyndir af netinu sem lýsa
þér. Gefðu tölvunni þinni jafnvel nafn og
vertu óhræddur að tala við hana. Tölvan talar
hvort eð er nokkuð við þig. Hún gefur hljóðmerki,
birtir hjálparglugga, viðvörunarglugga og ofl. Því
vænna sem þér þykir um tölvuna því
betur áttu með að sitja með henni og vinna.
Hugaðu að annarri aðstöðu
! Gerðu ráð fyrir stað þar sem þú
og tölvan getið fengið gott næði saman. Varast
skaltu gluggalaus skot eða afkima. Dagsbirtan hefur jákvæð
áhrif á hugann og það er upplífgandi
að hafa bjarta vinnuaðstöðu. Gerðu alltaf ráð
fyrir að geta verið í símasambandi þótt
þú sért á Internetinu, t.d með GSM, ISDN
eða ADSL. Gerðu ráð fyrir hillum fyrir bækur
og gögn.
|
|