Fjarnám - góð ráð
Eyjólfur Sturlaugsson 2001
cc
Undirbúningur



 

Undirbúningur

Þegar þú hefur tekið ákvörðun um að fara í fjarnám og hefur fengið inni í þeim námsáfanga sem þú ætlar þér skaltu strax byrja að undirbúa þig.

Farðu reglulega í tölvuna ! Nauðsynlegt er að byrja strax að venjast samveru við þennan miðil. Notaðu t.d klukkutíma á hverjum virkum degi og eitthvað um helgar. Æfðu þig á Internetinu, tölvupóstinum og ritvinnsluforritinu. Æfðu þig sérstaklega í eftirfarandi:
1) Að setja upp hugbúnað og hlaða niður gögnum eða hugbúnaði af netinu.
2) Að sækja póst, senda póst, senda viðhengi, senda myndir, búa til póstlista.
3) Að vafra um Internetið, merkja eftirlætis vefina, flytja texta og myndir af neti yfir í ritvinnslu, læra á leitarvélar og kaupa hugbúnað eða bækur af netinu.
4) Að skrifa í ritvinnslu, vista og prenta. Einnig að senda skjal beint með tölvupósti, flytja texta úr ritvinnslu yfir í tölvupóst og öfugt.
5) Í Windows stýrikerfinu þarftu að kunna að stilla skjáupplausn, prentgæði í útprentun, taka varaafrit og að "defragmenta" harða diskinn.
Ef þú hefur upplýsingar um einhvern hugbúnað eða upplýsingalindir frá kennaranum, skaltu strax hefjast handa við að æfa þig. Ekki bíða eftir upphafsdegi kennslunnar.

Gerðu varaáætlanir ! Hvert leita ég ef tölvan bilar hjá mér ? T.d áætlun um hver komi og skoði tölvuna og áætlun um hugsanlegan stað sem hægt er að stunda námið á meðan. Hvernig bregst ég við ef núverandi ástand breytist ? T.d áætlun um hverjir geta hugsað um börnin og áætlun hvernig bregðast skuli við eigin veikindum eða annarra í fjölskyldunni. Mundu að taka aukaafrit af öllum gögnum.

Forgansraðaðu tímanum !
Skoðaðu vel þann tíma sem þú hefur í hverri viku. Sæktu þér tímatöflu og prentaðu hana út. Merktu með litum eftirfarandi þætti: Vinnutíma, tíma með fjölskyldu án sjónvarps, sjónvarpsáhorf, líkamsrækt og svo frítíma fyrir utan allt þetta. Áætlaðu nú hversu mikinn tíma þú þarft í fjarnámið og merktu hann inn ofaní hina litina. Gerðu alltaf ráð fyrir tíma í líkamsrækt og tíma fyrir fjölskylduna. Haltu þér síðan við tímaáætlunina því það skiptir miklu máli að ná upp sjálfsaga, nákvæmlega í þessu atriði.