Breytingar á heimilislífi.
Þegar fjarnám kemur ofan á skyldur, ofan í
tíma með sínum nánustu og ofan í frítíma
breytist oft hefðbundinn gangur heimilislífsins. Mikilvægast
af öllu er að hafa tímann sem þarf fyrir námið
þegar í það er farið. Ef hann er til þá
þarf fjarnám ekki að hafa mikil áhrif á
fjölskyldulífið. Ef tímaskortur er fyrir hendi
strax í upphafi má búast við að samviskubit,
ásakanir og streita geri vart við sig þegar líða
tekur á námið. Stundum tekur námið nokkur
ár og það er langur tími í tímabili
barns sem maður vill vera þátttakandi í uppeldi
á. Gott samkomulag maka og barna áður en í
fjarnám er farið er því nauðsynleg.
Atvinnuveitandi er ósáttur.
Ef viðkomandi er í vinnu og í starfstengdu fjarnámi
en vinnuveitandi óánægður með það
þarf að spyrja sig nokkurra spurninga. Er ég þreyttur
í vinnunni vegna fjarnáms og þar af leiðandi
ekki eins góður starfsmaður ? Er kunnátta mín
í náminu farin að ógna áhrifum eða
völdum annarra ? Er mér betur borgið í vinnu
annarsstaðar ? Almennt skiptir það máli að
hafa stuðning og skilning yfirmanna og því best að
ræða við þá áður en í námið
er farið.
Streita. Ein algengasta orsök
streitu er sú að fólk sefur ekki nógu lengi,
vanrækir þörf líkamans fyrir svefn (Netdoktor.is).
Ástæður fyrir því að fjarnemar ganga
á svefntíma sinn virðist vera tvennskonar. Annarsvegar
sú að taka frekar tíma frá sjálfum sér
heldur en börnum og maka og hinsvegar vegna þess að síðla
kvölds og um nætur er gott næði. Líkamlegir
fylgifiskar svefnleysis eru m.a (samkvæmt netdoktor.is) meltingarsjúkdómar
(magabólgur,magasár, þarmakrampi),vöðvaspennuverkur,
mígreni, vöðvabólgur og mikið af verkjavandamálum.
Sumir húðsjúkdómar að ógleymdum
flensum, frunsum og kvefi eiga greiðari aðgang að þeim
sem eru þreyttir. Kvíði er tíð orsök
svefnleysis. Það eitt að bæta truflaðan svefn
minnkar kvíða. Helstu andlegu einkennin eru: Svefntruflanir,
áhyggjur, óþolinmæði, viðkvæmni,
bræði, einbeitingarskortur, dauðaangist, ótti við
að ruglast, óraunveruleikakennd, eirðarleysi.
Ef um viðvarandi streitu er að ræða ætti ekki
draga það að fara til læknis. Oft á tíðum
er þó um vítahring athafna að ræða
eða lífsstíl sem þarf að laga. Munið
bara að skerða ekki svefntíma, svefninn skiptir öllu
máli !