Njóttu samvinnunnar ! Við
skipulag fjarnáms er oft lögð mikil áhersla á
samvinnu, íhlutun í stjórnun, paravinnu í
verkefnavinnu og rannsóknum. Þegar svo er má búast
við að afköst í einstaklingsvinnu minnki, þar
sem vinnan er háð tíðum og miklum samskiptum við
aðra. Slík samskipti eru tímafrekari á netinu
en í nærnámi í kennslustofu. Ástæða
mikillar samvinnu er að hún eykur að meðaltali ánægju
fjarnema.
Vertu í félagskap !
Flest tölvutengt fjarnám byggir upp styðjandi námssamfélag.
Taktu þátt og settu inn ábendingar, efni og hrós
á umræðuvefnum. Vandaðu mjög það
sem frá þér fer í þessum efnum. T.d
verður svokallað "bara hrós" (gott hjá
þér, til hamingu og þess háttar) leiðigjarnt
með tímanum. Láttu fylgja stutta skýringu eða
röksemd fyrir því sem þú leggur til.
Mundu að þakka fyrir það sem þú færð.
Ef um staðbundnar lotur er að ræða skaltu mæta
í þær ef þú átt þess mögulegan
kost því slíkar lotur innihalda dýrmætasta
tíma námsáfangans.
Hafðu tíma fyrir vandamálin
! Einn af meginkostum fjarnáms er mikið frelsi
með tíma. Hægt er að hagræða tíma
sínum eftir því hvernig vindurinn blæs. Í
þessu getur þó falist hætta. Reyndu að
vinna jafnt og stöðugt í náminu en ekki í
skorpum. Ef þú átt mikla vinnu eftir en lítinn
tíma má ekkert klikka. Ef þú strandar í
tæknikunnáttu eða þú verður veikur
í miklu tímaleysi verður afraksturinn alltaf lakari
en vera skyldi við eðlilegar aðstæður. Þá
hefur þú misnotað frelsi þitt.
Taktu tæknina í þínar
hendur ! Ekki láta tæknina taka þig höndum.
Þegar unnið er mikið með tölvur og tæknivinnu
samfara fjarnámi fer manni oftast hratt fram í tölvu-
og tæknikunnáttu. Slíkt getur leitt til þess
að fara að nota sífellt meiri tíma og fé
í tæknihlið námsins. Góður árangur
og aukið sjálfstraust freistar til að kanna stöðugt
nýjar lendur. Þannig getur einföld nettenging orðið
að öflugri sítengingu með netmyndavél. Að
hlaða niður einu póstforriti getur orðið að
mörgum mismunandi forritum, sem t.d spila músík eða
virka sem netsímar. Einföld þægileg tölva
verður skyndilega ómöguleg og keypt er ný öflug
tölva. Og svo framvegis. Að öllu jöfnu á inntak
námsins, nám þitt og samskipti í námshópnum
að hafa forgang á tíma og fé þitt