Hallgrímur Pétursson

vefleiðangur


Eyjólfur Sturlaugsson april 2001


Kynning

Verkefni

Bjargir

Ferli

Mat

Niðurstaða


K y n n i n g

Vertu velkomin(n) !

Þú ert Gabríel erkiengill. Þér hefur verið falið að skoða hvernig maður Hallgrímur Pétursson var. Ástæðan er að Guð hefur fengið þá flugu í höfuðið að gera hann að sérstökum hirðengli, en fyrst þarf Guð ábyrgilegar upplýsingar um hvort Hallgrímur sé rétti engillinn í starfið.

 


V e r k e f n i

Eftir vefleiðangurinn þarf Gabriel að geta svarað eftirfarandi spurningum:
Hver var Hallgrímur Pétursson ? Við hvað starfaði hann ?
Fyrir hvað var hann frægur ? Um hvað eru passíusálmarnir ? Hvernig er hans minnst á jörðunni ?
Gabríel þarf að útbúa dýrðlega samantekt úr upplýsingum sínum fyrir almættið. Gabríel þarf einnig að búa til lítinn sálm til þess að ávarpa Guð með þegar hann skilar dýrðlegri samantekt sinni.

Upp


B j a r g i r

Guð hefur eftirlátið Gabríel eftirfarandi upplýsingar:

Kæri Gabrél
Þú verður að yfirfara öll helstu atriði um Hallgrím Pétursson. Sérstaklega verður að skoða þann skáldskap sem hann var frægastur fyrir. Það er sálmabálkur sem kallast Passíusálmarnir. Um hvað eru þessir sálmar ?Þá er mér fullkunnugt um að landar hans hafa í minningu Hallgríms reist tvær fallegar kirkjur. Þá er mér sagt að til sé fallegt lag við barnasálm Hallgríms, sem enn sé sungin í kirkjum. Þennan sálm (nr. 503) langar mig að heyra af þínum vörum Gabríel og bið ég þig að kenna mér bæði lag og texta þegar þú kemur.

Gakktu á drottins vegum

Upp

 

 

F e r l i

Vinnuaðferðir Gabríels eru eftirfarandi:
  1. Hann opnar ritvinnsluforit. Hann þarft að hafa Word eða annað ritvinnsluforrit opið, til þess að geta unnið í því um leið og hann skoðar netsíður. Hann safnar semsagt upplýsingum jafnóðum.
  2. Gabríel opnar autt skjal og merkir það nafni sínu og svo setur hann fyrirsöngina; Hallgrímur Pétursson.
  3. Næst fer Gabríel í bjargirnar og skoðaðar netsíðurnar með því að smella á grænu orðin. . Gabríel hefur stöðugt í huga hvert verkefnið sé svo hann geti glósað yfir á ritvinnslusíðuna þær upplýsingar sem hann ætlar að nota í dýrðlega samantekt.
  4. Þegar upplýsingaöflun er lokið hefur Gabríel dýrðlega samantekt sína í ritvinnslunni og endar með að búa til lítinn sálm, Guði þóknalegan.
  5. Nú vistar Gabríel síðuna og sendir hana svo í viðhengi á til Lykla Péturs á netfangið Drottinn@himnaríki.com. Boðar síðan koma sína til Guðs og flytur honum dýrlega samantekt sína og kennir honum sálm eftir Hallgrím Pétursson.
Upp

 

M a t

Í dýrlegri samantekt Gabríels metur Guð sérstaklega:

Upp

 

N i ð u r s t a ð a

Það sem þú átt að hafa lært af þessu verkefni er í fyrsta lagi það helsta um Hallgrím Pétursson og í öðrulagi þjálfast í að leita að ákveðnum upplýsingum á vefsíðum og fengið þjálfun í að vinna í tveimur forritum í einu í tölvunni.

Upp