|
Beint á vefsíður
|
Skilasíða í
námshlutanum
Nám og kennsla á netinu
1.1
Heimasíða unnin í Dreamweaver og þar undir
skilasíða.
Ég var mjög ákveðinn
í því að læra vel á
Dreamweaver og Fireworks og keypti til þess sérstakar
bækur. Þær hafa reynst mér afar
vel og mæli ég með slíkum stuðningi.
Eftir að hafa gert tvo vefleiðangra réðist
ég í metnaðarfulla vinnu við index
síðu á heimavefnum. Ég var marga
sólarhringa við þetta og gerði m.a
bannerinn minn í Fireworks. Vinnan í því
forriti hefur reyndar verið mér mun erfiðari.
Forsíðan
fór fyrst á vefinn 1. maí en kemur
nú hér uppfærð.
|
1.2
Vefleiðangur fyrir skólastarf.
Vefleiðangur minn er grundvallaður
á markmiðum í kristinfræði í
5. bekk samkvæmt aðalnámskrá. Þetta
var fyrsta vefsíðan sem ég gerði í
Dreamweaver og ákvað ég að reyna nýja
hluti. Vefleiðangurinn er um Hallgrím
Pétursson og er að mestu unninn í
leyers.
|
1.3.
Vefleiðangur fyrir frístundanám.
Frímerkjasöfnun
hefur verið áhugamál mitt í rúm
20 ár. Ég hef ekki mikinn tíma til
að seðja þessa söfnunaráráttu
mína. Mér fannst ekki vera mikið til af
íslensku aðgengilegu efni á vefnum þegar
ég bjó til vefinn. Enn fannst mér nauðsynlegt
að prufa eitthvað nýtt, svo ég ákvað
að nota frames við gerðina. Og það
er mín skoðun að þeir henti ákaflega
vel til að stýra vefleiðangrum.
|
1.4.
Kennsluefni á vef. Mind Manager.
Þegar ég fór að
vinna að þessum kynningar-
og kennsluvef komst ég að því
að ég hafði farið hárrétt
að. Þessi mikla vinna við að læra
tæknilega atriði í Dreamweaver opnuðu
nýjar dyr og möguleika, sem mig hafði alltaf
dreymt um. Ég lagði upp með 30 síðna
vef, sem ég teiknaði samviskulega upp og þaulskipulagði
(fannst mér) og var það í fyrsta
skipti sem ég beitti þeim vinnubrögðum.
Vefnum er ætlað að höfða til nemenda
í framhaldsskólum og háskólum
sem nota fartölvur sífellt meira. Hugmyndin
í uppbyggingunni er að vefurinn sé bæði
línulegur og hugtalegur. Þ.e endurspegli nokkuð
hugsunina á bak við MM en sé einnig með
hefðbundnar kennslusíður. Ég notaði
nýja hluti eins og hljóð á vef
og orð sem hreyfast. Marmiðið er að koma
síðan vefnum sem krækjum inn á síður
skóla og nemenda og fá leyfi hjá Mindjet
fyrirtækinu, sem framleiðir hugbúnaðinn,til
að vera opinber kynningar og umboðsaðili á
Íslandi fyrir hugbúnaðinn.. Við vinnuna
var ég í sambandi við fjölmarga og
komst þá að því að sérkennarar
hafa í auknum mæli verið að kynna sér
hugbúnað sem MM, en þess ber að geta
að nú spretta upp fyrirtæki sem framleiða
svipaðan hugbúanað og MM. Tel ég það
vera vegna aukinnar vinsælda hugarkorta eða hugtaka
korta. Því miður er vefurinn ekki fullfrágenginn
og mun ekki fara í umferð fyrr en svo er. Þetta
hefur verið gríðarleg vinna og lærdómsrík
og til að spara mér tíma hef ég
notað templates og assets markvisst við vefnaðinn.
|
1.5.
Umræðuframlög, prófun verkfæra og þarfagreining
Ég gerði ekki úttekt á
leitarvélum eins og flestir, heldur skoðaði
ég a) Nokkur frí geymslusvæði á
netinu og b) Page builder á Geosities. Umræðuframlögin
eiga að vera á Webboard en niðurstöður
úr þarfagreiningu á vef ásamt
umfjöllun um prófum setti ég upp á
fríu
svæði á Geosities með Page builder.
|
2.1. Námsumhverfi
á vefnum
| Ég hef haft allmiklar áhyggjur
af því að við sjáum tæknina
í of miklum ljóma og að hún sé
að verða tímafrek í formi afþreyingar
hjá okkur. Fólk eyðir stöðugt fleiri
klukkustundum á viku með tækjum sínum
(sjónvarpi, síma, tölvu og fl) en með
fólki. Því vildi ég leggja fram aðrar
sýn á framtíðinna
og kynni hana hér. |
2.2.
Umræðuframlög á UT2001
| Ég mætti að sjálfsögðu
á UT2001 þrátt fyrir langa dagleið.
Ég sagði það í umræðunum
og segi það enn að mér þótti
Patricia mest og best. Ekki er heldur verra að trúa
útreikningum hennar, en samkvæmt þeim verður
fólk sem bæði kann að kenna og kann eitthvað
fyrir sér í tölvu- og upplýsingatækni
afar eftirsóknarvert.....og þá væntanlega
hálaunað. Umræðuframlög er á
Webboard.
|
3.1 Netsamskipti
| Ég prófaði
dagbókarform
eða fréttaform við vefsíðuna mína.
Mig langaði í tiltölulega einfalda tegund ,
sem gæti virkað bæði fyrir mig og aðra.
Ég fann formið á Live
jornual.com Ég hef nú ekki verið duglegur
að færa inn (er líklega ekki nægilega
meðvitaður um þennan möguleika....eða
kannsi vantar bara þörfina) . Ég get læst
því hverjir hafa aðgang til að skirfa þarna
og valið til nokkra "vini" mína. Þeir
sem svara geta notað skemmtileg tákn til að tjá
tilfinningar sína og svo framv. Þegar einhver svarar
fæ ég allt saman í tölvupósti
og get þá brugðist við því
án þess að fara inn á netið. Það
er mjög þægilegt. Nokkuð auðvelt er
að breyta útliti, en til þess að hafa fullkomin
völd á því og fá fleiri viðbætur
þarf maður að gerast áskrifandi, kostar
reyndar mjög lítið. En ég mæli
með live jornual fréttadagbókar-forminu.. |
4.1 Umræðuframlög
um nýtingu í skólastarfi (úrdrættir.
| Ég valdi mér þrennt til
að koma með framlög um. Fyrst ber að nefna
netfíkn, þá
netsíur
og að síðustu E-Wizard
verkefni Láru Stefánsdóttur. Síðan
fór ég auðvitað alveg á fullt við
að svara öðrum og gera athugasemdir hjá
öðrum. Framlög mín eru á Webboard. |
4.2 Þátttaka
í eiginlegri rannsókn
| Ég ákvað að taka þátt
í rannsókninni, enda þótti mér
hún áhugaverð. Hinsvegar skil ég ekki
hvernig marktæk niðurstaða á að nást
ef svo mikil dreifing er á aldri þátttakenda,
sem raun ber vitni. |
5.0 Valið verkefni.
| Ég hef áður í
lið 1.4 sagt frá kennsluefni sem ég samdi
um Mind Manager.
Ég ákvað að halda áfram með
það sem valverkefni. Því miður náði
ég ekki að ljúka áætlunarverki
mínu, en engu að síður liggja hér
mikil vinna og færi ég hér upp 15 síður.
Vinnan við hönnun, framsetningu og efnisval er orðin
miklu meiri en 40 stundir. |
|
Upp
Upp
Upp
Upp
Upp
Upp
Upp
Upp
Upp
Upp
Upp
|