Fréttabréf
Félags vélritunar- og ritvinnslukennara



Ábyrgðarmaður: Ólöf S. Björnsdóttir – Júlí 2001 – 10. árg. 1. tbl. 23. júlí 2001

Ágæti félagsmaður!
Langt er síðan síðasta fréttabréf félagsins kom út. Ástæðurnar eru nokkrar og má þar aðallega nefna verkfall framhaldsskólakennara, veikindi og miklar annir.
Fallið var frá fyrirhuguðu framhaldsnámskeiði um póst-, gagnaflutning- og samskiptaforrit sem félagið hafði ákveðið að halda í sumar. Ástæðan fyrir þeirri ákvörðun stjórnarinnar var fyrst og fremst sá tíðarandi sem virtist svífa yfir vötunum eftir kjarasamningana sem gerðir voru við grunn- og framhaldsskólakennara en flest öll námskeið sem voru í boði féllu niður sökum þátttökuleysis, en eins og félagsmenn vita er hætt að meta námskeiðseiningar til launa. Einnig hafði það áhrif að enginn styrkur fékkst frá Endurmenntunarstofnun HÍ þetta árið. Stjórnin hins vegar tekið þá ákvörðun að halda áðurnefnt framhaldsnámskeið í haust (október). Fyrirkomulagið yrði þá svipað og síðast, þ.e. staðbundin lota og fjarnám. Nánar verður sagt frá námskeiðinu þegar nær dregur.
Síðasti aðalfundur félagsins var haldinn 21. ágúst sl. í tengslum við sumarnámskeið sem haldið var á vegum félagsins í samvinnu við Símennt KHÍ. Fundurinn var fámennur en góðmennur að vanda. Fráfarandi formaður félagsins, Ragnhildur Konráðsdóttir, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. Gjaldkerinn, Þorbjörg Garðarsdóttir, lagði fram reikningana og voru þeir samþykktir. Ný stjórn var kosin og var Ólöf S. Björnsdóttir, kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, kosin formaður félagsins. Nýr stjórnarmaður kom inn frá framhaldsskólanum í stað Ragnhildar, Jón Ingvar Kjaran kennari við Verzlunarskóla Íslands. Aðrir stjórnarmenn gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni.
Síðastliðið sumar gerði félagið könnun í grunnskólum landsins á því hvernig staðið væri að kennslu í UT-greinum, helstu kennslugreinum innan UT, kennslumagni þeirra greina og einnig hvernig staðið væri að greiðslum fyrir yfirferð verkefna og tölvuumsjón. Spurningalisti, ásamt skýringarbréfi, var sendur til allra (190) grunnskóla á landinu, 27 svör bárust eða 14,2% svörun. Þegar lesið var í svörin sem bárust mátti sjá misjafna stöðu skólanna og loðin svör sem ástæða væri til að kanna nánar. Ef til vill er næsta skref að fylgja þessu eftir með því að endurtaka svipaða könnun með markvissari og lokaðri spurningum til að fá fram betri svörun. Niðurstöður þessarar könnunar voru kynntar á 4. málþingi RKHÍ þann 14. október sl. og er fyrirhugað að fá Ragnhildi Konráðsdóttur til að segja frá ofangreindri könnun ásamt niðurstöðum á aðalfundinum sem bókaður er 15. ágúst nk.
Okkur í stjórn félagsins þætti mjög gott ef félagsmenn gætu sent okkur póstfangið sitt svo hægt sé að uppfæra félagatalið. Hægt er að fara inn á vefsíðu félagsins http://www.ismennt.is/not/fvr/ og senda póst þaðan eða til einhverra okkar í stjórninni.

Fundarboð
Aðalfundur félagsins verður haldinn 15. ágúst 2001 í kjallara Kennarahússins við Laufásveg kl. 17:00.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf:
Skýrsla stjórnar, formanns og gjaldkera.
Kosning stjórnar.
2. Tillaga að breytingu á nafni félagsins. Breytist úr „Félag vélritunar- og ritvinnslukennara“ í „Félag UT-kennara“ (upplýsingatækni).
3. Erindi: Ragnhildur Konráðsdóttir. Niðurstöður könnunar FVR á stöðu UT-greina í grunnskólum..
4. Önnur mál.

Með von um að sjá sem flesta.
Bestu kveðjur,
Stjórnin



Ábyrgðarmaður: Ragnhildur Konráðdóttir – Ágúst 2000 – 9. árg. 2. tbl. 3. ágúst 2000

Ágæti félagsmaður!
Það tókst vel tókst til með fræðslufundinn um margmiðlun sem haldinn var 22. mars sl. á vegum félagsins. Hildigunnur Halldórsdóttir hjá Námsgagnastofnun, sem kynnti forritið Margmiðlunarsmiðjuna og Hlynur Helgason frá Borgarholtsskóla, sem sagði frá skipulagi nýrrar brautarsem nefnist Margmiðlunarhönnun. Um 20 manns sóttu fundinn og var gerður góður rómur að fyrirlesurum.
Félagið stóð einnig fyrir námskeiði 7.–9. júní sl. í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Það var haldið í Háskólanum í Reykjavík og bar yfirskriftina: Rafræn gagnasöfn og hvernig hægt er að nýta sér þau í gegnum vefinn. Kennarar námskeiðsins voru Sólveig Þorsteinsdóttir, forstöðumaður bókasafns- og upplýsingamiðstöðvar Háskólans í Reykjavík og Ragnhildur Konráðsdóttir, kennari við Verzlunarskóla Íslands og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík.
Einnig verða haldin námskeið í ágúst í samvinnu við Símenntunarstofnun KHÍ og þá fyrir grunnskólakennara. Þar verður farið í Windows umhverfið, Word-ritvinnslu og töflureikninn Excel. Reynt var að koma að námskeiði í vélritun; kennslufræðinni, verkefnum og prófagerð, en það tókst ekki að þessu sinni. Okkur sýnist þó að grunnskólakennarar hafi þörf fyrir slíkt námskeið því nú dynur á þeim mörgum að taka þessa kennslu að sér jafnvel þó þeir hafi ekki nægan undirbúning til þess.
Aðalfundur félagsins hefur verið ákveðinn 21. ágúst n.k. kl. 17 í Kennarahúsinu við Laufásveg. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa ætlar félagsmaður okkar, Elín Jóhannsdóttir, að kynna og sýna kennsluleiðbeiningar Ritfinns en það er ný þýðing á kanadíska vélritunarforritinu TypingPal sem hefur lítilega verið kynnt hjá félaginu áður. Áætlað er að þetta forrit komi út og verði tilbúið núna í haust.
Þar sem vefsíða félagsins hefur verið uppfærð verður hægt að smella hér á netfangið: http://www.ismennt.is/not/fvr/ og sjá hvað er á döfinni varðandi námskeið o.fl. Einnig mun fréttabréfið verða þar á sínum stað.
Okkur í stjórn félagsins þætti mjög gott ef félagsmenn gætu sent okkur póstfangið sitt til að hægt væri að senda þeim fréttabréfið á rafrænu formi sem og ýmsar tilkynningar í gegnum tölvupóst. Hægt er að fara inn á vefsíðu félagsins og senda póst þaðan eða til einhverra okkar í stjórninni.
Bestu kveðjur,
Stjórnin


Ábyrgðarmaður: Ragnhildur Konráðsdóttir – Mars 2000– 9. árg. 1. tbl. 10. mars 2000

Ágæti félagsmaður!
Nú er komið að félags- og fræðslufundi hjá félaginu sem verður 22. mars nk. kl. 17-19 í húsakynnum Verzlunarskóla Íslands við Ofanleiti, 3. hæð í stofunni Ritver.
Í dag er mikið rætt um margmiðlun og ýmislegt er henni tengist og var ákveðið að fá kunnáttumenn í þeim málum til að koma og kynna okkur hvernig hægt er að nýta sér forrit o.fl. tengt henni í kennslu. Tveir fyrirlesarar verða á fundinum, annar fyrir grunnskólann og hinn fyrir framhaldsskólann. Hildigunnur Halldórsdóttir hjá Námsgagnastofnun mun kynna forritið Margmiðlunarsmiðjuna en það hefur nýlega verið þýtt úr sænsku. Forritið kom út hjá Námsgagnastofnun sl. haust og er ætlað til kennslu í grunnskólum. Hlynur Helgason hjá Borgarholtsskóla mun sjá um að kynna margmiðlunarbrautina sem þar er í boði. Við vonumst til að sem flestir sjái sér fært að koma til að sjá og heyra hvað er á döfinni í dag í margmiðlunarkennslu, hver þróunin er og hvert stefnir.
Vert er að benda félagsmönnum okkar á námskeiðið sem félagið mun standa fyrir á komandi sumri í samvinnu við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Það verður haldið 7.–9. júní í Háskólanum í Reykjavík og ber yfirskriftina: Rafræn gagnasöfn og hvernig hægt er að nýta sér þau í gegnum vefinn. Kennarar námskeiðsins verða Sólveig Þorsteinsdóttir, forstöðumaður bókasafns og upplýsingamiðstöðvar Háskólans í Reykjavík og Ragnhildur Konráðsdóttir, kennari við Verzlunarskóla Íslands og aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík.
Fleiri námskeið eru í bígerð en ekki hefur verið gengið endanlega frá þeim. Félagið hefur í samvinnu við Símennt KHÍ ákveðið að halda þrjú námskeið. Þau eru eftirfarandi:
Gunnnámskeið í vélritun
Námskeið í Windows og Excel
Námskeið í Windows og Word
Nánari upplýsingar eru á vef Símenntunar KHÍ.
Þar sem vefsíða félagsins hefur nú verið uppfærð er hægt að smella sér á veffangið: http://www.ismennt.is/not/fvr/ og sjá hvað er á döfinni varðandi námskeið o.fl. Einnig er fréttabréfið þar á sínum stað.
Okkur í stjórn félagsins þætti mjög gott ef félagsmenn gætu sent okkur póstfangið sitt til að hægt sé að senda ykkur ýmsar tilkynningar í gegnum tölvupóst. Hægt er að fara inn á vefsíðu félagsins og senda póst þaðan eða til einhverra okkar í stjórninni.
Bestu kveðjur,
Stjórnin


Ábyrgðarmaður: Ragnhildur Konráðsdóttir – Desember 1999 – 8. árg. 3. tbl. 10. desember 1999

Ágæti félagsmaður!
Aðalfundur félagsins var haldinn 9. - 11. ágúst sl. í tengslum við sumarnámskeiðið okkar í Verzlunarskóla Íslands. Nokkrir félagsmenn sáu sér fært að mæta og er það vel en gaman hefði verið að sjá fleiri. Fráfarandi formaður félagsins, Helga Stefánsdóttir, flutti skýrslu um starfsemi félagsins á síðastliðnu starfsári. Gjaldkerinn, Þorbjörg Garðarsdóttir, lagði fram reikningana og voru þeir samþykktir. Ný stjórn var kosin og var Ragnhildur Konráðsdóttir, kennari við Verzlunarskóla Íslands, kosin formaður félagsins. Nýr stjórnarmaður kom inn frá grunnskólanum í stað Helgu og var það Guðrún Jónasdóttir í Breiðholtsskóla. Félagið vill þakka Helgu fyrir vel unnin störf í þess þágu og bjóða Guðrúnu velkomna til starfa. Aðrir stjórnarmenn gáfu kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni. Félagið hefur í huga að gera úttekt á stöðu vélritunar- og tölvukennslu í grunnskólum því eins og margir félagsmenn vita þá var boðuð stefnubreyting í þessum málum í nýrri aðalnámskrá sem átti að taka gildi sl. haust en hefur fengið þriggja ára aðlögunartíma. Teljum við því tímabært að fá heildarmynd af stöðu mála til að félagið geti tekið þátt í brautryðjendastarfinu sem þar mun þurfa að eiga sér stað. Allar ábendingar frá félagsmönnum eru vel þegnar. Fyrirhugað er að halda ýmiss konar námskeið á næsta ári og hefur verið sótt um slíkt til endurmenntunarstofnana. Ekki verður ljóst fyrr en eftir áramót hvort styrkir fást til þess en
Bestu kveðjur og gleðilega hátíð,
Stjórnin

Til baka á heimasíðu