UT og kennsla

Nýting í skólastarfi

Í áfanganum Nýting í skólastarfi sem Lára Stefánsdóttur hefur umsjón með á að gera gein fyrir reynslu, kennslu, sérsviði og áhugasviði innan UT.

Reynsla -

Í rauninni á ég mér ekki langa sögu á sviði upplýsingatækni. Fyrstu kynni mín af þeim heimi voru þegar ég ákvað að fara á námskeiðið Nám og kennsla á netinu nú í janúar. Þó hef ég notaði tölvu í kennslu. Þar nýtast mörg góð kennsluforrit sem hafa verið gefin út af Námsgagnastofnun .

Kennsla -

Ég útskrifaðist úr Kennaraháskóla Íslands 1980 og hef kennt síðan með hléum, vegna barneigna. Ég hef kennt nemendum á öllum aldursstigum bæði sem almennur bekkjarkennari, faggreinakennari og sérkennari. Auk þess var ég stundakennari síðastliðinn vetur í Kennaraháskóla Íslands þar sem ég kenndi nemendum á fyrsta ári um stærðfræði og stærðfræðimenntun. Lengst af kenndi ég í Seljaskóla í Reykjavík en síðustu ár hef ég verið kennari við Lindaskóla í Kópavogi. Í ár er ég í námsleyfi og er að læra stærðfræði við Háskóla Íslands, auk þess er ég í Kennaraháskólanum í þessu námi og á námskeiði í megindlegri aðferðarfræði.

Sérsvið -

Ég hef lifað og hrærst í heimi stærðfræðinnar og stærðfræðimenntunar síðastliðin sex ár. Ég hef verið að mennta mig í greininni en einnig hef ég haldið námskeið um kennsluhætti stærðfræðinnar og er ég ásamt öðrum að skrifa námsefni í stærðfræði fyrir nemendur á miðstigi á vegum Námsgagnastofnunnar. Námsefnið heitir Geisli.

Áhugasvið -

Ég hef áhuga á að útbúa kennsluefni í stærðfræði þannig að margbreytileiki margmiðlunar nýtist sem best. Þuríður Jóna Jóhannsdóttir skrifaði athyglisverða meistaraprófsritgerð sem heiti Veiđum menntun í Netiđog er um námskenningar og nýja miðla og áhrif þeirra á nám og kennslu. Ég hef því áhuga á að kynna mér stefnur og straumar í námskenningum og tengsl þeirra við nýtingu upplýsinga- og samskiptatækni í námi. Mér fannst í því sambandi athyglisverð skýrslurnar um NámUST og um Dreifnám í Menntaskólanum á Akureyri vorönn 2002.